Lífið

Lengi lifir í gömlum glæðum

Máni Snær Þorláksson skrifar
Camila Cabello og Shawn Mendes þann 25 september árið 2021.
Camila Cabello og Shawn Mendes þann 25 september árið 2021. EPA/Peter Foley

Bandaríska söngkonan Camila Cabello og kanadíski söngvarinn Shawn Mendes sáust sitja saman á úrslitaleik Copa America í Flórída um helgina. Þau hafa tvisvar byrjað og hætt aftur saman á síðustu árum en það er spurning hvort allt sé þá þrennt er.

Þau Cabello og Mendes opinberuðu ástarsamband sitt í fyrsta skipti sumarið 2019 en þau höfðu þekkst í dágóðan tíma fyrir það. Orðrómur um að þau væru byrjuð að rugla saman reitum styrktist til muna eftir að þau gáfu út tónlistarmyndband fyrir lagið Señorita. Þótti einhverjum augljóst að myndbandið gæfi til kynna að þau væru meira en bara vinir.

Í ágúst sama ár var orðrómurinn svo endanlega staðfestur og ljóst að þau Cabello og Mendes væru par. Rúmlega tveimur árum síðar var sambandið þó á enda. Cabello og Mendes gáfu út yfirlýsingu í nóvember árið 2021 að þau væru hætt saman.

„Við höfum ákveðið að binda enda á rómantíska sambandið okkar en ást okkar á hvoru öðru sem manneskjum er sterkari en nokkru sinni fyrr,“ sagði í upphafi yfirlýsingarinnar sem birt var á Instagram.

Þau sögðust hafa verið bestu vinir þegar þau byrjuðu saman og að þau ætli sér að vera það áfram. Tveimur árum eftir sambandsslitin var ljóst að þau héldu að minnsta kosti vinskapnum og raunar gott betur:

Eftir að parið sást kyssast á tónlistarhátíðinni Coachella í apríl 2023 fóru fljótt að birtast myndir af þeim saman á ný. Í næsta mánuði sáust þau saman á stefnumótum á New York og Los Angeles. Það entist þó ekki lengur en svo að í júní var greint frá því að þau væru hætt saman á ný.

En ljóst er að lengi lifir í gömlum glæðum því eins og fram hefur komið sátu þau saman og horfðu á Argentínu vinna Kólumbíu í úrslitaleik Copa America.

Það er þó spurning hvort þetta fyrrverandi par sé að byrja saman á ný eða hvort þau séu ennþá bara einstaklega góðir vinir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×