Handbolti

Haukar mæta Hönunum frá Finn­landi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tjörvi Þorgeirsson og félagar í Haukum mæta HC Cocks í 64-liða úrslitum Evrópubikarsins.
Tjörvi Þorgeirsson og félagar í Haukum mæta HC Cocks í 64-liða úrslitum Evrópubikarsins. Vísir/Hulda Margrét

Karlalið Hauka mun mæta finnska liðinu HC Cocks í 2. umferð Evrópubikarsins í handbolta.

Dregið var í 1. og 2. umferð keppninnar rétt í þessu, en Haukar voru eina íslenska liðið í pottinum. Valur og FH verða í pottinum þegar dregið verður í Evrópudeildina síðar í dag.

Haukar, sem höfnuðu í fimmta sæti Olís-deildar karla á síðasta tímabili og féllu úr leik í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar, sluppu við 1. umferð Evrópubikarsins og fara beint í 64-liða úrslit.

Haukar munu því halda uppi heiðri íslenskra liða í keppninni, sem Valsmenn unnu á síðasta tímabili. Haukar mæta finnska liðinu HC Cocks í 64-liða úrslitum, en fyrri leikur liðanna ætti að fara fram á heimavelli Hauka.

Fyrri leikur Hauka og HC Cocks verður spilaður annað hvort 19. eða 20. október og sá síðari fer fram annað hvort 26. eða 27. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×