Innlent

Hefja við­gerðir á næstu dögum þrátt fyrir ó­vissu­á­stand

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Töluvert þarf að gera í Grindavík til að tryggja öryggi.
Töluvert þarf að gera í Grindavík til að tryggja öryggi. Vísir/Arnar

Grindavíkurnefnd hyggst ráðast sem allra fyrst í framkvæmdir og viðgerðir í Grindavík svo að hægt verði að opna bæinn að fullu á nýjan leik þrátt fyrir óvissuástand á svæðinu. 

Árni Þór Sigurðsson, formaður nefndarinnar, kveðst vilja tryggja flóttaleiðir með viðgerðum á götum og stígum. Störf nefndarinnar hafi gengið vel síðan að nefndin tók til starfa þann fyrsta júní.

„Við erum búnir að kynna aðgerðaráætlun sem gengur út á það að ráðast í viðgerðir á götum í Grindavík og fylla upp í sprungur og loka sprungum af og líka girða af hættulega staði til að gera bæinn eins öruggan og hægt er.“

Góð viðbrögð frá stjórnvöldum

Nefndin kynnti áætlunina fyrir ríkisstjórninni í síðustu viku sem hafi tekið vel í fyrirætlanirnar og verið sammála um að leggja kapp á að tryggja öryggi í Grindavík svo íbúar geti snúið aftur þangað.

„Almennt góð viðbrögð við því og mætti stuðningi hjá stjórnvöldum líka sem er mikilvægt. Þannig að vonandi verður hægt að fara í þetta bara núna á næstu dögum.“

Ekki gæt að bíða endalaust

Árni segir mikilvægt að hefja viðgerðir sem fyrst þrátt fyrir óvissu ástand á svæðinu á meðan landris heldur áfram og búist er við öðru eldgosi á næstu vikum eða mánuðum.

„Ef við ætluðum að bíða eftir því að öllu þessu væri lokið þá gætum við þurft að bíða ansi lengi og þá sé rétt að fara í viðgerðir núna á því sem hægt er og reyna að opna bæinn meira og glæða hann meira lífi.“

Sex til níu mánuðir

Verkefnið gæti tekið allt að sex til níu mánuði í heild sinni en Árni segir of snemmt til að segja til um hvenær fólk getur dvalið í Grindavík.

„Hvort það verður hægt að opna hann algerlega án takmarkanna það er nú kannski ekki alveg víst hvort það verði alveg strax en eftir því sem þessum framkvæmdum vindur fram og öryggi í bænum eykst þá verður auðvitað hægt að opna hann meira og vonandi gerist það á næstu vikum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×