Fótbolti

Mark­vörðurinn sótti skóflu og fyllti upp í holu á vellinum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Derek Gaston fann skaftlausa skóflu til að bjarga málunum.
Derek Gaston fann skaftlausa skóflu til að bjarga málunum. Skjáskot/Raith Rovers

Markvörður skoska D-deildarliðsins Stirling Albion, Derek Gaston, greip til sinna eigin ráða þegar hann uppgötvaði stærðarinnar holu á vellinum í leik gegn Raith Rovers í skoska deildarbikarnum um helgina.

Stirling Albion tók á móti B-deildarliði Raith Rovers síðastliðinn laugardag í fyrstu umferð H-riðils skosku deildarbikarkeppninnar.

Gestirnir í Raith Rovers voru 2-0 yfir í hálfleik eftir tvö mörk frá Aidan Connolly. Áður en Connolly fullkomnaði þrennuna á 66. mínútu þurfti þó að gera stutt hlé á leiknum þar sem markvörður heimamanna, Derek Gaston, hafði uppgötvað holu á vellinum, inni í hans eigin vítateig.

Gaston bað dómara leiksins að stöðva leikinn og sýndi honum holuna, enda getur slíkt hreinlega reynst hættulegt.

Það var svo Gaston sjálfur sem fann lausn á málinu. Við hlið vallarins var stærðarinnar sandhrúga og þar lá skófla. Gaston hljóp sjálfur og sótti eitt skóflufylli af sandi, sem reyndist nóg til að fylla upp í holuna og forða þannig leikmönnum frá því að slasa sig. Reyndar var ekkert skaft á skóflunni, en eins og sjá má að meðfylgjandi myndbandi lét Gaston það ekki stöðva sig.

Gestirnir í Raith Rovers unnu að lokum 3-0 sigur og eru því með þrjú stig eftir einn leik í H-riðli skosku deildarbikarkeppninnar, en Stirling Albion er án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×