Fótbolti

„Hefði viljað sjá menn að­eins þroskaðri“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Halldór Árnason og Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Blika á blaðamannafundi fyrir leikinn.
Halldór Árnason og Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Blika á blaðamannafundi fyrir leikinn. vísir/sigurjón

„Sóknarlega þorðum við að halda í boltann, þorðum að spila á milli línanna og fara í svæðin sem þeir skildu eftir sig,“ segir Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, um góða byrjun liðsins í fyrri leiknum gegn Tikvesh frá Makedóníu. Blikar komust í 2-0 en misstu leikinn niður í 3-2 tap.

„Þeir stíga hátt upp í sinni pressu og við gerðum vel að refsa þeim fyrir það. Án bolta vorum við öflugir í pressunni og þvinguðum þá í langar sendingar og voru ekki í vandræðum með að eiga við það. Það er aldrei neitt fullkomið en fyrri hálfleikurinn okkar var eins nálægt því og hægt er.“

Hann segir að andstæðingarnir hafi gert þrjár breytingar í hálfleik ytra.

„Þeir setja inn tvo leikmenn sem voru nýkomnir til liðsins og ég held að þeir hafi ekki sjálfir vitað hvað þeir myndu fá frá þeim. Þeir taka mikla áhættu. Fyrsta markið þeirra kemur upp úr engu og þá hefði viljað sjá menn aðeins þroskaðri og átta sig á því að 2-1 úti eru ekki slæm úrslit. Í stað þess að ætla strax að svara fyrir þetta og skora fleiri mörk og opna leikinn.“

Halldór segir samt sem áður að eins marks tap í fyrri leiknum sé enginn dauðadómur.

„Það var margt í okkar frammistöðu sem var gott. Við þurfum að einhverju leyti að vera þolinmóðir. Þeir munu koma til með að verja forskot sitt. Við verðum að passa það að ætla ekki að sigra heiminn á fyrstu mínútunum. Og spila að einhverju leyti agaðan en góðan leik.“

Breiðablik mætir Tikvesh í síðari leik liðanna í kvöld. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli klukkan 19:15 og er jafnframt sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni.

Klippa: „Hefði viljað sjá menn aðeins þroskaðri“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×