Körfubolti

Haukar styrkja sig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mate Dalmay er þjálfari Hauka.
Mate Dalmay er þjálfari Hauka. vísir/anton

Haukar hafa samið við Litháann Arvydas Gydra um að leika með liðinu í Bónus deild karla á næsta tímabili.

Gydra er þrautreyndur 34 ára framherji. Hann er 2,05 metrar á hæð.

Undanfarin tvö ár hefur Gydra leikið með Raiffeisen Flyers Wels í Austurríki. Á síðasta tímabili var hann með þrettán stig og 4,5 fráköst að meðaltali í leik.

Auk þess að spila í Austurríki og í heimalandinu hefur Gydra spilað á Spáni.

Haukar ollu vonbrigðum á síðasta tímabili, enduðu í 10. sæti Subway deildarinnar og komust ekki í úrslitakeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×