Veður

Úr­hellið var það mesta í júní frá upp­hafi mælinga

Árni Sæberg skrifar
Vatnið rann yfir veginn vestan Grundarfjarðar á laugardag.
Vatnið rann yfir veginn vestan Grundarfjarðar á laugardag. JÓK

Úrhellisrigning í Grundarfirði um helgina er sú mesta sem mælst hefur í júlímánuði á landsvísu. Á laugardegi og aðfaranótt sunnudags mældist úrkoman 227 millimetrar. Það er jafnframt mesta úrkoma sem mælst hefur í Grundarfirði.

Greint var frá því um helgina að fádæma úrkoma hefði verið um vestanvert landið dagana á undan. Bóndi í Dölum sagði „fína og snyrtilega lindará“ við bæ hans nú líta út eins og heljarinnar jökulsá. Bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar hafði áhyggjur af ástandi vega og álagi á fráveitukerfinu.

Í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands segir að gul viðvörun hafi verið í gildi liðna helgi vegna úrkomu og vinds á Faxaflóa og í Breiðafirði, og að sama skapi hafi verið varað við vatnavöxtum og skriðuhættu.

Spár hafi ræst og það orðið svo að mikil úrkoma var á Snæfellsnesi og Barðaströnd um liðna helgi. Mesta ákefðin hafi verið á laugardeginum og aðfaranótt sunnudags. Í Grundarfirði mesta úrkoman mælst, 227 mm af regni, sem sé mesta úrkoma sem mæld hefur verið á einum sólarhring í Grundarfirði og jafnframt mesta sólarhringsúrkoma sem mæld hefur verið í júlímánuði á landsvísu.

Svæðið móttækilegt fyrir úrkomu

Þá segir að áhugavert sé að þó að úrkomumet hafi verið slegið hafi ekki verið mikið um skriðuföll á svæðinu umhverfis Grundarfjörð. 

„Svo virðist sem að þetta svæði sé móttækilegra fyrir aftakaúrkomu en önnur, en samverkandi áhrif jarðfræðilegra- og landslagsaðstæðna gera það að verkum að skriðuhætta ógnar ekki byggð. Áður hefur verið aftakaúrkoma á Grundarfirði, til dæmis í miklu vatnsveðri í september 2011, þá féllu engar skriður nærri bænum.

Ein skriða þó

Í veðrinu um liðna helgi hafi þó verið miklir vatnavextir og ein skriða fallið sunnan við Grundarfjörð. Vatn hafi flætt yfir vegi beggja vegna bæjarins, úr farvegi Ytri-Búðarár sem er vestan við bæinn og Grundarár austan hans.

Miklir vatnavextir hafi verið víðar á Vesturlandi. Á Skarðsströnd hafi Staðarhólsá í Staðarhólsdal vaxið mikið. Í Gufudal hafi vatnavextir verið eins og þeir gerast mestir að sögn heimamanna og Gufudalsvatn hafi vaxið um einn og hálfan metra og vatn flætt yfir tún. 

Aðrar ár sem uxu mikið séuVatnsdalsá í Vatnsfirði á Barðaströnd og Haffjarðará á Snæfellsnesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×