Erlent

Selenskí til­búinn að vinna með Trump

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Selenskí kveðst tilbúinn að vinna með hverjum sem er við völd í Bandaríkjunum.
Selenskí kveðst tilbúinn að vinna með hverjum sem er við völd í Bandaríkjunum. AP

Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir það gæti orðið erfitt að vinna með Donald Trump, verði hann endurkjörinn forseti Bandaríkjanna, en hann óttist ekki erfiði. Hann kveðst tilbúinn til að vinna með hverjum sem er við völd í Bandaríkjunum.

Þetta kemur fram í viðtali BBC við Selenskí.

Donald Trump hefur verið gagnrýninn á utanríkisstefnu Joe Bidens og haft uppi efasemdir um ágæti gífurlegs stuðnings Bandaríkjamanna til Úkraínu. Trump hefur ýmislegt sagt sem gefur til kynna að hann muni draga verulega úr, eða stöðva alfarið fjárveitingar til Úkraínu.

Þá hefur varaforsetaefni Trumps, JD Vance, sagt að honum sé „alveg sama hvað gerist við Úkraínu á einn eða annan hátt.“

„Kannski skilur hann ekki það sem er í gangi í Úkraínu“ sagði Selenskí, inntur eftir viðbrögðum við orðum Vance. Selenskí segir að Úkraína verði að vinna með Bandaríkjunum, og taki ný ríkisstjórn við keflinu, þurfi Úkraína einnig að starfa með þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×