Sport

Littler í sárum eftir að hafa hætt með kærustunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eloise Milburn faðmar Luke Littler. Sambandi þeirra er nú lokið.
Eloise Milburn faðmar Luke Littler. Sambandi þeirra er nú lokið. getty/Zac Goodwin

Luke Littler og kærasta hans, Eloise Milburn, eru hætt saman eftir tíu mánaða samband.

Littler skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann komst í úrslit á HM í pílukasti um áramótin. Þessi sautján ára strákur fylgdi því svo eftir með því að vinna úrvalsdeildina í pílukasti.

Littler og Milburn byrjuðu saman skömmu fyrir heimsmeistaramótið en núna er sambandinu lokið og pílukastarinn ungi ku vera í sárum.

Samband Littlers og Milburns vakti talsverða athygli, ekki síst vegna fjögurra ára aldursmunar á þeim. Áreitið var svo mikið að Littler þurfti að fá utanaðkomandi hjálp til að eyða neikvæðum og meiðandi athugasemdum af Instagram-síðu sinni.

Milburn viðurkenndi einnig að hún hefði átt erfitt með að tækla allt áreitið sem fylgdi sambandinu við Littler.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×