Veður

Skúradembur víða um land

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Búast má við rigningu í kvöld.
Búast má við rigningu í kvöld. Vísir/Vilhelm

Óstöðugt loft er enn þá yfir landinu og má búast við skúradembum nokkuð víða, einkum síðdegis og í kvöld. Hiti ætti að ná um og yfir fimmtán stig þar sem best lætur.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands fyrir daginn í dag. Þar segir einnig að lægðarbóla komi til okkar úr norðri á morgun með vætu fyrir norðan og þá kólnar á þeim slóðum, en fyrir sunnan og austan verður yfirleitt bjartara veður og mildara.

Önnur dýpri lægð nálgast svo landið á sunnudag úr austri með vaxandi norðvestanátt og rigningu og kólnandi veðri. Hins vegar verður skaplegra veður syðst á landinu. Á mánudag verður lægðin komin norður af landinu. Nokkuð stíf vestanátt verður þá með áframhaldandi vatnsveðri fyrir norðan en úrkomuminna syðra.

Útlit er fyrir hlýtt loft með sunnanátt á þriðjudag og miðvikudag með vætu víða um land, síst þó norðaustanlands.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:

Norðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Rigning norðvestantil þegar kemur fram á daginn, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast fyrir sunnan.

Á sunnudag:

Norðlæg átt, 3-10. Dálítil rigning eða súld fyrir norðan, en úrkomulítið eftir hádegi. Bjart sunnanlands, en stöku síðdegisskúrir. Hvessir seinnipartinn og fer að rigna norðan- og austanlands um kvöldið. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast sunnanlands.

Á mánudag:

Vestanátt 10-18, hvassast á annesjum norðaustanlands. Talsverð rigning fyrir norðan, en úrkomulítið syðra. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast suðaustanlands.

Á þriðjudag:

Suðvestlæg átt og dálítil rigning með köflum, en þurrt og yfirleitt bjart fyrir austan. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast austanlands.

Á miðvikudag:

Útlit fyrir suðaustlæga átt með rigningu, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti svipaður.

Á fimmtudag:

Austlæg eða breytileg átt og rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Milt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×