Fótbolti

Sjáðu geggjaða stoðsendingu Gylfa: „Eruð þið að grínast?“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gylfi Þór gaf góða stoðsendingu og afgreiðsla Tryggva Hrafns var ekki verri.
Gylfi Þór gaf góða stoðsendingu og afgreiðsla Tryggva Hrafns var ekki verri. Vísir/Diego

Valsmenn fóru mikinn í Albaníu í gærkvöld er þeir rassskelltu lið Vllaznia til að tryggja sæti sitt í næstu umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Kristinn Kjærnested fór hamförum er hann lýsti leik Vals í gær, þá sérstaklega yfir fjórða marki Vals. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði þá skömmu eftir að hafa komið inn af bekknum með frábærri afgreiðslu eftir ótrúlega stoðsendingu Gylfa Þórs Sigurðssonar.

„Þvílíkt og annað eins, þvílík gæði, þvílíkur leikmaður,“ sagði Kristinn um stoðsendingu Gylfa Þórs. „Það er fátt betra en góð vippa,“ bætti hann við um magnaða afgreiðslu Tryggva Hrafns.

Mörkin úr leik Vals má sjá í spilaranum að ofan, sem og þegar stuðningsmenn Vllaznia hentu blysum inn á völlinn í lok leiks.

Að neðan má sjá mörkin fjögur úr 3-1 sigri Breiðabliks á Tikves frá Norður-Makedóníu. Þar á meðal glæsilegt mark Höskuldar Gunnlaugssonar sem átti virkilega góðan leik í gærkvöld.

Öll fjögur liðin frá Íslandi spila í Sambandsdeildinni strax í næstu viku. Allir fjórir leikirnir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×