Lífið

Fengu veður af eldingum og þurftu að slaufa tón­leikunum

Máni Snær Þorláksson skrifar
Hér sést Dave Grohl ræða við tónleikagesti. Þessi mynd er þó ekki tekin á tónleikunum sem hér um ræðir heldur á Hróarskeldu í Danmörku í sumar.
Hér sést Dave Grohl ræða við tónleikagesti. Þessi mynd er þó ekki tekin á tónleikunum sem hér um ræðir heldur á Hróarskeldu í Danmörku í sumar. EPA/HELLE ARENSBAK

Hættulegt veður olli því að bandaríska hljómsveitin Foo Fighters neyddist til að slaufa tónleikum sínum fyrr en planið var. Hljómsveitin reyndi að spila í gegnum veðrið en að lokum var ákveðið að það gæti ekki gengið lengur.

Tónleikarnir fóru fram á miðvikudaginn í New York í Bandaríkjunum. Í myndbandi frá tónleikunum heyrist Dave Grohl, söngvari Foo Fighters, segjast hafa verið að fá veður af því að það væri stormur með eldingum að nálgast. 

Búist væri við eldingum en Grohl sagði að þeir ætluðu að spila eins lengi og þeir gætu, þar til einhver myndi segja þeim að það væri ekki öruggt fyrir tónleikagesti.

Fljótlega eftir það sagði Grohl að þeir ætli að spila eitt lag í viðbót og hætta svo. Planið væri að koma aftur ef það væri mögulegt. „Þið vitið að við munum gera það ef við getum það,“ sagði hann. Skömmu síðar neyddist hljómsveitin til að slaufa tónleikunum.

Grohl sagði á sviðinu að þetta væri glötuð staða og að ef hann gæti gert eitthvað í henni þá myndi hann gera það. Þá hvatti hann tónleikagesti til að leita skjóls og passa upp á öryggi sitt í storminum.

Aðrir tónleikar í kvöld

Í yfirlýsingu sem hljómsveitin birti á samfélagsmiðlum í kjölfarið kemur fram að meðlimir sveitarinnar séu vonsviknir að hafa ekki fengið að klára tónleikana. Öryggi aðdáenda, starfsfólks og allra á svæðinu hafi verið í fyrsta sæti.

„Við áttum ekki annarra kosta völ en að segja þessu lokið. Við erum þakklát fyrir hverja sekúndu sem við fengum að spila fyrir ykkur og hlökkum til að sjá ykkur aftur,“ segir í yfirlýsingunni.

Í lokin segir að það gæti verið jafn fljótlega og næsta föstudag, það er að segja í dag. Hljómsveitin heldur einmitt aðra tónleika á sama stað í kvöld. Ekki kemur þó fram hvort miðahafar fyrri tónleikana fái að mæta á þá sem eru í kvöld. 

Í athugasemdum veltir fólk því fyrir sér hvort hljómsveitin ætli að endurgreiða fólki fyrir miðana og kvartað er yfir óljósum upplýsingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×