Innlent

Börnum sé mis­munað eftir bú­setu við ein­kunna­gjöf

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Könnunarpróf er lagt fyrir nýja nemendur Verzlunarskóla Íslands í upphafi skólaárs.
Könnunarpróf er lagt fyrir nýja nemendur Verzlunarskóla Íslands í upphafi skólaárs. Vísir/Vilhelm

Viðskiptaráð Íslands segir að jafnræðis sé ekki gætt við einkunnagjöf í íslenskum grunnskólum. Þetta komi fram á könnunarprófi sem lagt er fyrir nýnema Verzlunarskóla Íslands í upphafi skólaárs til að kanna raunfærni þeirra.

Í umsögn í samráðsgátt stjórnvalda sem mbl.is fjallar um segir að nemendur sumra grunnskóla búi yfir góðri færni í samræmi við skólaeinkunnir sínar en nemendur annarra grunnskóla séu veikari á sama sviði þrátt fyrir að vera með sömu skólaeinkunnir.

„Með notkun ósamanburðarhæfra einkunna við val á milli umsækjenda um framhaldsskólavist er börnum mismunað eftir búsetu. Þannig getur umfang einkunnaverðbólgu í hverfisskóla barns ráðið tækifærum þess til framhaldsnáms,“ segir í umsögninni.

Umsögnin var lögð fram við áform mennta- og barnamálaráðuneytisins um að ráðherra verði heimilt að leggja alfarið niður samræmd könnunarpróf.

„Án samræmdra mælikvarða er sumum börnum neitað um tækifæri til að bæta færni sína en ekki öðrum. Afnám samræmdra árangursmælikvarða hefur þannig leitt til brots á jafnræði meðal grunnskólabarna,“ segir þá í umsögninni.

Að sögn ráðsins er löngu orðið ljóst að afnám samræmdra prófa árið 2009 hafi verið mistök og benda á að námsárangri hefur farið hrakandi síðan í samanburði við OECD-löndin.

Í umsögninni gagnrýnir ráðið einnig meinta leyndarhyggju sem einkennt hafi störf ráðuneytisins þegar kemur að námsmati. Ráðuneytið og stofnanir þess hafi hvorki birt sundurliðaðar niðurstöður PISA-mælinga né samræmdra könnunarprófa niður á einstaka grunnskóla eða sveitarfélög um árabil. Ráðið segir að fyrir vikið sé umbótastarf og aðhald torveldað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×