Enski boltinn

Sjáðu ó­trú­legt sigur­mark Stefáns Teits og fé­laga gegn Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Robbie Brady skoraði stórglæsilegt mark þegar Preston North End sigraði Liverpool í æfingaleik.
Robbie Brady skoraði stórglæsilegt mark þegar Preston North End sigraði Liverpool í æfingaleik. getty/Dave Howarth

Stefán Teitur Þórðarson lék með Preston North End þegar liðið sigraði Liverpool, 1-0, í æfingaleik í gær. Eina mark leiksins var í glæsilegri kantinum.

Leikurinn í gær, sem fór fram fyrir luktum dyrum, var fyrsti leikur Liverpool undir stjórn Arnes Slot. Hann tók við Rauða hernum af Jürgen Klopp í sumar.

Stefán Teitur er í nýgenginn í raðir Preston frá Silkeborg og hann var í byrjunarliðinu í gær.

Aðeins eitt mark var skorað í leiknum í gær en það gerði Robbie Brady eftir um klukkutíma leik.

Írinn vann þá boltann á miðjum vallarins og lyfti honum svo yfir Vítezslav Jaros í marki Liverpool. Markið má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×