Lífið

Gleði og sorg í bland á síðasta LungA

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þau Helena og Þórhildur Tinna fyrir utan Herðubreið, menningar- og félagsheimili Seyðisfjarðarbæjar.
Þau Helena og Þórhildur Tinna fyrir utan Herðubreið, menningar- og félagsheimili Seyðisfjarðarbæjar. Aðsend

Lista- og tónlistarhátíðin LungA fer fram um helgina á Seyðisfirði í síðasta sinn eftir 25 ár. Veðrið leikur við gesti og spennandi kveðjudagskrá er í vændum. Skipuleggjendur hátíðarinnar segja það tregafullt en fallegt að kveðja.

Þórhildur Tinna Sigurðardóttir og Helena Solveigar Aðalsteinsbur framkvæmdastjórar segja gleði í bland við sorg einkenna kvöldið í kvöld en þá verða haldnir stórtónleikar í tilefni af lokum hátíðarinnar.

Blíðviðri og sköpunargleði

Dagskráin hefur verið þétt alla vikuna en frá því á mánudaginn hafa verið listasmiðjur undir stjórn ólíkra listamanna þar sem gestir fengu að spreyta sig á dansi, myndbandagerð, hugleiðslu, keramík og mörgu fleiru. Um sextíu þátttakendur hafa dvalið á Seyðisfirði í blíðviðri og sköpunargleði.

Helena segir að þau hafi ákveðið að einblína á listasmiðjurnar sem kjarna LungA en að sjálfsögðu hafi ekki verið hægt að komast hjá því að halda stórtónleika. Hán segir þó hátíðina vera fyrst og fremst fjölskylduvæna.

Þétt kveðjudagskrá

Hán segir tregablandina gleði munu einkenna kvöldið.

„Þrátt fyrir að þetta sé tilfinningaþrungið þá er þetta búið að vera mjög skemmtilegt allt saman í vikunni og það eru allir spenntir og við fengum alveg æðislegt veður. Nú er sólin byrjuð aftur að skína. Þetta er gleði í bland við sorg sem við erum að undirbúa okkur fyrir í kvöld,“ segir hán.

Dagskrá kvöldsins er spennandi blanda af þekktum stærðum og grasrótarböndum. Meðal þeirra sem koma fram er austfirska þungarokkshljómsveitin Chögma, Kristín Sesselja, Hjaltalín, Bashar Murad og fleiri. Í kvöld verður svo haldin kveðjuathöfn sem Ívar Pétur Kjartansson tónlistarmaður leiðir. Fögnuðurinn heldur svo áfram inn í nóttina á öldurhúsum bæjarins, Lárunni og Öldunni.

Ástríðan haldi þessu á floti

Þórhildur Tinna og Helena að LungA eigi eftir að vera frjósamur jarðvegur fyrir komandi kynslóðir og hvetja fólk til að taka við keflinu.

„Við skorum á fólk að kýla á hlutina. Það þarf að gera hlutina sem maður dreymir um að gera. Það er svo mikið af yndislegu fólki sem við höfum kynnst hér sem er svo tilbúið til að hjálpa. LungA hefur núna starfað í 25 ár og er langmest sjálfboðaliðastarf. Það hefur engin verið í fullu starfi við að sinna hátíðinni þótt við vinnum í heilt ár við að undirbúa. Þetta er bara ástríðan sem heldur þessu á floti. Okkur langar að styðja við það ef fólk vill taka við keflinu,“ segir Helena.

Andinn er enn í loftinu

Þórhildur Tinna segir endalok LungA vera áskorun sem einhver muni grípa.

„Þetta er bara áskorun sem er í loftinu og einhver mun grípa hana. ég held að það sé náttúruleg hringrás allra hluta að vera með upphaf og enda og þá opnast nýjar gáttir fyrir komandi kynslóðir. LungA hefur verið vettvangur sem fangar einhvern anda og þó að LungA-hátíðin sé að klárast þá er andinn enn þá í loftinu sem er grasrótin og komandi kynslóðir,“ segir hún.


Tengdar fréttir

Síðasta LungA-hátíðin haldin í sumar

Listahátíðin LungA, sem haldin hefur verið á Seyðisfirði um árabil, mun fara fram í síðasta skiptið í sumar en 24 ár eru síðan hún var haldin í fyrsta skipti. 

Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA

Listahátíðin LungA verður haldin í síðasta sinn í sumar, 15. - 21. júlí, á Seyðisfirði en 24 ár eru liðin frá því að hún var fyrst haldin. Hátíðin hefur tilkynnt flesta tónlistarmenn sem fram koma í ár en þar á meðal verður palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad sem vakti mikla athygli í Söngvakeppninni í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×