Íslenski boltinn

Sjáðu Svein Margeir klára meistarana og mörkin úr fallslagnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vestramenn fagna marki Benedikts Warén gegn HK-ingum.
Vestramenn fagna marki Benedikts Warén gegn HK-ingum. vísir/hag

Fimmtánda umferð Bestu deildar karla hófst í gær með tveimur leikjum. KA vann óvæntan sigur á Íslands- og bikarmeisturum Víkings á meðan HK og Vestri skildu jöfn í mikilvægum botnslag.

Aðeins eitt mark var skorað þegar Víkingur sótti KA heim. Það gerði Sveinn Margeir Hauksson þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Þetta var síðasti leikur Dalvíkingsins fyrir KA í bili en hann er á leið til náms við UCLA háskólann í Kaliforníu.

Með sigrinum komust KA-menn upp í 7. sæti deildarinnar en Víkingar eru enn á toppnum.

HK og Vestri mættust í botnslag í Kórnum og gerðu 1-1 jafntefli. Atli Hrafn Andrason kom HK-ingum yfir á 13. mínútu en Benedikt Warén jafnaði fyrir Vestramenn á 33. mínútu eftir slæm mistök fyrirliða HK, Leifs Andra Leifssonar. 

Heimamenn urðu fyrir áfalli í seinni hálfleik þegar markvörðurinn Arnar Freyr Ólafsson meiddist og þurfti að fara af velli. Óttast er að hann hafi slitið hásin.

HK er áfram í 10. sæti deildarinnar en með jafnteflinu í Kórnum Vestri fór upp úr því tólfta í það ellefta.

Mörkin úr leikjum gærdagsins má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Arnar eftir annað tap Víkings á stuttum tíma: „Við erum í öldu­dal“

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings, segir lið sitt í öldudal eftir tap á Akureyri í 15. umferð Bestu deildar karla. Liðið féll út úr forkeppni Meistaradeildar Evrópu í liðinni viku og gefur nú liðunum í 2. og 3. sæti Bestu deildarinnar tækifæri á að brúa bilið.

„Vissi að þegar myndi líða á myndu þeir opna sig“

„Þetta var góður sigur, ótrúlega gaman að halda hreinu og fullt af fólki mætt. Smá dramatískt, skorum seint í leiknum. Er virkilega ánægður,“ sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir 1-0 sigur sinna manna á Íslands- og bikarmeisturum Víkings í 15. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu.

Ómar Ingi: Spurning hvort hann standi við það sem hann lofaði vini sínum

HK gerði 1-1 jafntefli í dag gegn Vestra inn í Kórnum, en jöfnunarmark Vestra kom eftir agaleg mistök fyrirliða heimamanna, Leifs Andra Leifssonar. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, átti erfitt með að sætta sig við úrslit leiksins aðspurður hvort þetta hafi verið sanngjörn niðurstaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×