Innlent

Reiknar með 15 þúsund manns í Herjólfs­dal

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar, sem segist verða mjög sáttur ef 15 þúsund manns mæta á hátíðina í Herjólfsdal í ár.
Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar, sem segist verða mjög sáttur ef 15 þúsund manns mæta á hátíðina í Herjólfsdal í ár. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Spenna og eftirvænting fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum vex og vex með hverjum deginum en formaður þjóðhátíðarnefndar reiknar með 15 þúsund manns í dalinn. Bekkjabílar verða á sínum stað og efnt verður til búningakeppni í tilefni af 150 ára afmæli þjóðhátíðar.

Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar er nú inn í dal alla daga fram að þjóðhátíð um verslunarmannahelgina með sínum sjálfboðaliðum að undirbúa herlegheitin en huga þarf að mörgum þáttum vegna hátíðarinnar.

„Við erum náttúrulega að setja upp hérna nokkur mannvirki. Við erum með Hofið og litla sviðið, nýtt litla svið, sem við verðum með núna og svo erum við bara að græja dalinn, merkja göturnar fyrir hvítu tjöldin já, fullt af verkefnum,” segir Jónas.

„Við ákváðum í tilefni afmælisins að bæta aðeins í þannig að við lengdum dagskrána aðeins, byrjum 20:30 á kvöldin í staðin fyrir 21:00 og við erum með töluvert fleiri atriði,” bætir Jónas við.

Jónas segir að bekkjabíll verði á ferðinni á þjóðhátíðinni í tilefni af 150 ára afmælinu, þá verður sérstakur brennukóngur og Hjalti Úrsus verður með hálendaleika og keppnisbrautir fyrir krakka í anda frjálsíþrótta, sem voru alltaf á þjóðhátíð í gamla daga. Einnig verður búningakeppnin endurvakin en hún var í mörg ár á þjóðhátíð.

Bekkjarbíll verður á ferðinni á þjóðhátíð í tilefni af 150 ára afmæli hátíðarinnar.Aðsend

En hvað reiknar Jónas við mörgum á þjóðhátíð?

„Ég væri sáttur við 15 þúsund manns,” segir hann brosandi.

Það er alltaf mikil spenna og tilhlökkun í Vestmannaeyjum vikurnar fyrir þjóðhátíð.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×