Körfubolti

„Við lögðum mikla á á­herslu á að fá Dwayne aftur til okkar”

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwayne Lautier-Oungleye verður áfram í Njarðvíkurbúningnum á næstu leiktíð.
Dwayne Lautier-Oungleye verður áfram í Njarðvíkurbúningnum á næstu leiktíð. Vísir/Hulda Margrét

Njarðvíkingar fengu gleðifréttir í gær þegar ljóst varð að Dwayne Lautier-Oungleye spilar áfram með liðinu í Bónus deildinni í körfubolta.

Lautier-Oungleye kom til liðsins á miðju tímabili í fyrra og var án efa einn af bestu leikmönnum deildarinnar.

Lautier-Oungleye var með 22,5 stig og 3,8 stoðsendingar að meðaltali í deild og úrslitakeppni en hann hitti úr 44 prósent þriggja stiga skota sinna og var með 4,8 fráköst og 1,2 stolinn bolta í leik.

„Við lögðum mikla á áherslu á að fá Dwayne aftur til okkar enda sýndi hann og sannaði vel á síðasta tímabili hvers megnugur hann er. Þetta er frábær leikmaður og góður drengur og mun rífa áfram metnaðinn í klúbbnum okkar,” sagði Halldór Karlsson formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, í viðtali á heimasíðu félagsins.

Njarðvíkingar ætla sér því áfram stóra hluti en liðið er að flytja úr Ljónagryfjunni yifr í Stapagryfjuna sem verður tilbúin von bráðar.

Lautier-Oungleye spilar ekki bara í nýju húsi heldur einnig fyrir nýjan þjálfara því Rúnar Ingi Erlingsson tók við þjálfun liðsins af Benedikt Guðmundssyni í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×