Íslenski boltinn

Mörkin úr Bestu: Blikar röðuðu inn hjá KR og var hann kominn inn hjá Emil?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Blikar fagna einu af fjórum mörkum sínum í sigrinum á KR í gær.
Blikar fagna einu af fjórum mörkum sínum í sigrinum á KR í gær. Vísir/HAG

Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og nú má sjá mörkin úr leikjunum tveimur hér inn á Vísi.

Breiðablik minnkaði forskot Víkinga á toppnum í þrjú stig með 4-2 sigri á KR í Kópavogi. Stjörnumenn komu sér upp í efri hlutann með 2-0 sigri á Fylki í Garðabænum.

Benjamin Stokke kom inn á sem varamaður og skoraði tvívegis á móti KR en hin mörk Blika skoruðu þeir Kristinn Steindórsson og Höskuldur Gunnlaugsson. Luke Rae skoraði bæði mörk KR-liðsins.

Emil Atlason fagnaði markinu og fékk það líka skráð á sigVísir/Anton Brink

Emil Atlason og Helgi Fróði Ingason skoruðu mörk Stjörnunnar undir lok leiksins en Emil fékk markið skráð á sig.

Emil átti þá skalla í slá og niður og dómarar leiksins mátu það sem svo að boltinn hafi verið kominn inn fyrir marklínuna þegar Kjartan Már Kjartansson fylgdi á eftir og sparkaði boltanum í netið.

Klippa: Mörkin úr leik Breiðabliks og KR
Klippa: Mörkin úr leik Stjörnunnar og Fylkis



Fleiri fréttir

Sjá meira


×