Erlent

Par sem hugðist sigla frá Kanada til Asóreyja fannst látið

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Parið fjallaði um ferðir sínar á samfélagsmiðlum. 
Parið fjallaði um ferðir sínar á samfélagsmiðlum.  Facebook/Theros Sailing Adventures

Lík breskrar konu og kanadísks manns fundust um borð á björgunarbáti sem hafði rekið að eyjunni Sable í Kanada á dögunum. Ekkert hafði spurst til parsins í sex vikur, en þegar síðast var vitað um ferðir þeirra ætluðu þau að sigla þvert yfir Atlantshafið á seglskútu. 

Í umfjöllun BBC kemur fram að þann 18. júní hafi lögreglu verið tilkynnt um hvarf þeirra Söruh Packwood og Brett Clibbery þegar ekkert hafði spurst til þeirra um hríð. 

Viku áður hafi þau lagt af stað rúmlega þrjú þúsund kílómetra langa leið frá Nova Scotia héraði í Kanada á umhverfisvænni skútu. Ferðinni var heitið til Asóreyja og átti ferðin að taka um þrjár vikur. 

Lík þeirra rak að landi á Sable og fundust þann 12. júlí. Parið er talið hafa yfirgefið skútuna sjálf og síðar farist. BBC hefur eftir lögreglu í Kanada að atburðarásin sé enn ókunn og málið sé í rannsókn. 

Þá kemur fram að mögulega hafi flutningaskip hefði rekist á skútuna án þess að áhöfn þess tæki eftir. Parið hefði þá annað hvort ekki getað komið í veg fyrir áreksturinn eða haft skútuna á sjálfvirkri stýringu meðan þau hvíldu sig í káetunni. 

Packwood og Clibbery héldu uppi samfélagsmiðlasíðum þar sem þau birtu iðulega efni frá siglingum þeirra á skútunni Theros. Þau sögðust leggja mikið upp úr því að geta sýnt öðrum að hægt sé að ferðast á umhverfisvænan hátt. Í myndbandi sem þau birtu á YouTube útskýrðu þau að þau kæmu til með að reiða sig á sólarsellur, rafhlöður og rafknúinn mótor endurunninn úr bíl í ferðinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×