Formúla 1

Ver­stappen ætlar ekki að biðjast af­sökunar: „Geta haldið sig heima“

Aron Guðmundsson skrifar
Verstappen var ósáttur í gær, það er óhætt að segja það.
Verstappen var ósáttur í gær, það er óhætt að segja það. Vísir/Getty

Ríkjandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen, ökuþór Red Bull Racing segist ekki þurfa biðjast afsökunar á framferði sínu og orðbragði í samskiptum við lið sitt í ungverska kappakstrinum í gær.

Segja má að allt sem gat farið úrskeiðis, fyrir Red Bull Racing og Max Verstappen í kappakstri gærdagsins, hafi farið úrskeiðis. 

Eftir að hafa ræst í þriðja sæti í kappakstrinum og haldið þeirri stöðu sá röð atvika og slæmra ákvarðana til þess að Hollendingurinn féll niður listann og fór svo að hann endaði í fimmta sæti kappakstursins eftir að hafa lent í árekstri við Bretann Lewis Hamilton undir lok hans. 

Á meðan á kappakstrinum stóð mátti heyra hvöss orðaskipti Verstappen við liðs sitt í gegnum samskiptakerfi bílsins. Þurfti ítrekað að þagga niður í hluta orðræðu Verstappen í beinni sjónvarpsútsendingu frá kappakstrinum því þau voru mörg orðin, sem Hollendingurinn lét falla, sem þóttu ekki birtingahæf.

Ástralinn Oscar Piastri, ökuþór McLaren, fór með sigur af hólmi í kappakstrinum. Hans fyrsti sigur í Formúlu 1 mótaröðinni og liðsfélagi hans, Lando Norris, hreppti annað sætið á undan Lewis Hamilton, ökuþór Mercedes sem endaði í þriðja sæti.

Í viðtali hjá Sky Sports eftir ungverska kappakstursinn var Verstappen spurður að því hvort hann hyggðist biðjast liðsfélaga sína afsökunar á hegðun sinni á meðan á kappakstrinum stóð. 

„Ég tel okkur ekki þurfa að biðjast afsökunar þegar að svona staða kemur upp. Við þurfum bara að standa okkur betur,“ svaraði Verstappen sem leiðir stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1. 

„Ég skil ekki af hverju sumir telja að þú megir ekki láta heyra í þér í gegnum samskiptakerfi bílsins. Þetta er íþrótt. Ef þetta er ekki að skapi einhverra þá geta þeir hinir sömu haldið sig heima.“

Góðu fréttirnar fyrir Verstappen og liðsfélaga hans í Red Bull Racing eru þær að ekki er langt þangað til að þeir geta kvittað fyrir slæma frammistöðu um nýliðna helgi. 

Tímabilið í Formúlu 1 heldur áfram um komandi helgi þegar að keppnishelgin á Spa Francorchamps fer fram. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×