Innlent

„Ég skil ekki af hverju þær fagna því ekki bara“

Eiður Þór Árnason skrifar
Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Vísir/Vilhelm

„Ég skil ekki af hverju þær fagna því ekki bara að ég sé að berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Sjá þær svona svakalega ofsjónum yfir pólitískum skoðunum mínum að þær geta bara ekki fengið sig til að bregðast öðruvísi við?“

Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríksmálanefndar og þingkona Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir þau viðbrögð sem hún hefur fengið við umræðu um þingmál sem hún lagði fram um heiðurstengt ofbeldi og kynfæralimlestingar kvenna.

Hún hefur sakað íslenska femínista um hræsni og segist standa við þau ummæli. Um sé að ræða tvær tegundir af ofbeldi sem Ísland hafi unnið gegn í þróunarsamvinnu og nú séu áhyggjur af því að það berist í auknum mæli til Íslands.

„Ég var að ræða þessi þingmál mín og furðuleg viðbrögð sem ég hef fengið við þeim frá íslenskum femínistum og mér þætti það hræsni að þær skyldu ekki taka ekki undir baráttu kvenna í fjarlægari heimshlutum,“ sagði Diljá í Bítinu á Bylgjunni. Þeirri gagnrýni hennar hafi ekki verið svarað og þess í stað „bara verið ráðist á mig persónulega.“

Var þér stillt upp sem einhverjum rasista eða eitthvað slíkt?

„Jájájá, ég er búin að fá fjölmargar athugasemdir og skilaboð um það og það var auðvitað tónninn í þessu viðtali á föstudaginn,“ segir Diljá og vísar þar til viðtals við Drífu Snædal, talskonu Stígamóta og Lindu Dröfn Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka um kvennathvarf á Bylgjunni á föstudag þar sem ummæli Diljár voru rædd. 

„Og sérstaklega kannski frá Lindu í Kvennaathvarfinu sem hafði svo miklar áhyggjur af því að við værum að einblína of mikið á erlenda gerendur í ofbeldismálum.“

Ekki sú fyrsta sem tekur upp þessa umræðu

„Fyrir fimm árum síðan þá hélt Kvennaathvarfið ráðstefnu um ofbeldi innan fjölskyldna af erlendum uppruna og var sérstaklega fókusað á heiðurstengt ofbeldi og kynfæralimlestingar. Fengu sérfræðinga að utan og voru sérstaklega að miða þessa umfjöllun að flóttafólki á Íslandi og ég man ekki til þess að fólk hafi ráðist eitthvað sérstaklega á Kvennaathvarfið,“ bætir Diljá við. Hún hafi óskað eftir upplýsingum um það hvort stefnubreyting hafi átt sér stað hjá samtökunum í þessum efnum.

„Það virðist bara ekki vera sama hver tekur málið upp,“ segir Diljá og veltir því upp hvort stjórnmálaskoðanir fólks skipti þar höfuðmáli.

Störf hennar gerð tortryggileg

„Hverjir mega þá taka upp þessi mál ef formaður utanríkismálanefndar, fyrrum aðstoðarmaður utanríkisráðherra, sem er reyndar líka lögmaður með margra ára reynslu af meðal annars réttargæslu í ofbeldismálum. Ef hún má ekki taka þessi mál upp, þá væri bara ágætt að fá að heyra það frá þessum blessuðu konum hver það er sem má ræða þessi mál. Ég verð bara að segja að mér fannst virkilega lélegt að þær væru að reyna að gera störf mín tortryggileg.“

Diljá segist reglulega hafa tekið upp málefni kvenna, bæði á sviði utanríkismála og almennt í samfélaginu.

„Ég hefði bara búist við stuðningi frá þessum konum, ekki bara einhverju ímynduðu niðurrifi.“ Hún vilji sjá fólk taka höndum saman en „ekki vera að rífa hvor aðra niður með þessum hætti.“

Segir þær gerast seka um hræsni

„Þetta er ofbeldi sem þessar sömu konur hafa verið að setja á oddinn á undanförnum árum og ég er að taka upp í samhengi við utanríkismál og líka hættuna á því hvernig ákveðnar tegundir af ofbeldi geta borist hingað til lands, eitthvað sem ríkislögreglustjóri hefur verið að tala um, dómsmálaráðherra hefur verið að tala um, frjáls félagasamtök hafa verið að tala um. Svo tek ég það upp og þá ég fæ þessi viðbrögð,“ bætir Diljá við og kallar þetta hræsni.

„Drífa Snædal var reyndar mjög upptekin af hlutfalli ofbeldisbrota af hendi erlendra karla í þessu viðtali á Bylgjunni. Þetta er bara eitthvað sem barst ekki einu sinni í tal í þessum hlaðvarpsþætti, ég átta mig ekki á því hvers vegna hún nefnir þetta sérstaklega.“ Vísar Diljá þar til viðtals sem Þórarinn Hjartarson tók við hana í hlaðvarpinu Ein pæling og varð til þess að Drífa og Linda voru boðaðar í áðurnefnt viðtal á Bylgjunni. Hlusta má á það í spilaranum neðst í fréttinni. 


Tengdar fréttir

Sakar Maríu um trumpisma

Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins svarar fyrir gagnrýni sem hún hefur hlotið vegna ummæla um íslenska femínista í aðsendri grein á Vísi. Þar spyr hún hvort hægrikonur megi ekki ræða ofbeldi „sem berst hingað frá fjarlægari heimshlutum“ og bendlar gagnrýninn femínista við trumpisma. 

Femínistar botna ekkert í Diljá

Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður fór mikinn í hlaðvarpsviðtali í vikunni og sagði íslenska femínista hræsnara. Þessir sömu femínistar svara Diljá fullum hálsi.

Diljá Mist segir hræsni ein­kenna ís­lenska femín­ista

Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins dró ekki af sér í hlaðvarpsþættinum Ein pæling; hún sagði innflytjendur fá „súkkulaðipassa“ hjá íslenskum femínistum í mannréttindamálum. Hún talaði umbúðalaust út um skoðun sína á íslenskum femínistum sem hún telur hræsnara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×