Lífið

„Þetta var aug­ljós­lega slys“

Máni Snær Þorláksson skrifar
Alec Baldwin knúsar Alex Spiro, lögmann sinn, eftir að dómarinn tilkynnti að málinu væri vísað frá.
Alec Baldwin knúsar Alex Spiro, lögmann sinn, eftir að dómarinn tilkynnti að málinu væri vísað frá. EPA/RAMSAY DE GIVE

Tveir kviðdómendur í sakamáli bandaríska leikarans Alec Baldwin hafa nú stigið fram og rætt um málið. Þeir eru á því að það hafi verið augljóst frá upphafi að um slys hafi verið að ræða.

Baldwin var sakaður um manndráp af gáleysi. Skot hljóp af byssu leikarans á tökustað kvikmyndarinnar Rust árið 2021 með þeim afleiðingum að kvikmyndatökumaðurinn Halyna Hutchins lést.

Joanna Hang, einn kviðdómenda í málinu, segir í samtali við The New York Times að það hafi verið augljóst að um slys væri að ræða. Að hennar mati hefði Baldwin ekki einu sinni átt að vera ákærður. Hún segir að eftir því sem leið á réttarhöldin virtist ákæran ekki halda miklu vatni.

„Þetta var augljóslega slys. Kenningar um að það hafi verið einhver ásetningur eða gífurlegt kæruleysi af hans hálfu sem olli þessu, þær hljómuðu ekki eins og þær væru sannar.“

Leikarinn eigi að geta treyst samstarfsfólki

Ganriel Picayo, hinn kviðdómandinn sem rætt var við, segir að hennar skoðun hafi breyst eftir að hún komst að því að Hannah Gutierrez-Reed, sem sinnti eftirliti með vopnunum á kvikmyndasettinu, hafði þegar verið dæmd í átján mánaða fangelsi fyrir sinn þátt í dauðsfalli kvikmyndatökumannsins.

Picayo segir að þá hafi hún komist að þeirri niðurstöðu að um væri að ræða mjög furðuleg réttarhöld og að Baldwin ætti ekki að vera ákærður fyrir sinn hlut í málinu. Sem leikari ætti hann að geta treyst fólkinu sem vinnur á kvikmyndasettinu „til að gera vinnuna sína.“

Baldwin var upphaflega ákærður fyrir manndráp af gáleysi í janúar 2023 en ákveðið var að falla frá ákærunni til að rannsaka málið betur. Ári síðar var hann svo aftur ákærður og í það skipti fór málið fyrir dómstóla.

Málinu var vísað frá dómi þegar dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að ákæruvaldið og lögreglan hefðu haldið aftur af sönnunargögnum. Dómarinn úrskurðaði auk þess að ákæruvaldið gæti ekki höfðað mál á hendur leikaranum á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×