Innlent

Um­boðs­maður Al­þingis á­minnir ríkis­lög­reglu­stjóra

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skúli Magnússon er umboðsmaður Alþingis og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri.
Skúli Magnússon er umboðsmaður Alþingis og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri.

Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að eftirfylgni ríkislögreglustjóra við reglugerð um einkenni og merki lögreglunnar hafi verið ábótavant.

Málið varðar ábendingu sem umboðsmanni barst um að í notkun væri lögreglumerki sem virtust ekki eiga sér stoð í umræddri reglugerð. 

Umboðsmaður óskaði skýringa hjá ríkislögreglustjóra, sem sagði meðal annars að nauðsynlegt hefði verið að taka upp nýja lögreglustjörnu til að svara nútímakröfum, þar sem stjarnan sem getið er í reglugerðinni hafi „reynst illa til stafrænnar útgáfu“.

Þá hafi í eldri hönnun ekki verið horft til skýrleika og sýnileika merkja, sem nú sé gerð krafa um.

Ríkislögreglustjóri segir í svörum sínum að embættið hafi tekið það formlega upp við dómsmálaráðuneytið 18. mars síðastliðinn að endurskoða þyrfti reglugerðina en í niðurstöðu sinni beinir umboðsmaður því til ríkislögreglustjóra „að gæta framvegis að því að haga framkvæmd sinni með þeim hætti að breytingum sé ekki hrint í framkvæmd áður en viðeigandi breytingar hafa verið gerðar á þeim réttarreglum sem við eiga“.

Segist hann munu fylgjast áfram með þróun málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×