Körfubolti

Daníel rétt missti af stoðsendingatitlinum á EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daníel Ágúst Halldórsson var með 6,9 stig og 7,0 stoðsendingar að meðaltali í leik í úrslitakeppni EM.
Daníel Ágúst Halldórsson var með 6,9 stig og 7,0 stoðsendingar að meðaltali í leik í úrslitakeppni EM. FIBA.basketball

Daníel Ágúst Halldórsson átti mjög flott Evrópumót með íslenska tuttugu ára landsliðinu í körfubolta en íslensku strákunum tókst þar að halda sæti sínu í A-deildinni.

Daníel Ágúst stýrði leik íslenska liðsins vel og var meðal efstu manna í bæði stoðsendingum og stolnum boltum.

Daníel rétt missti að lokum af stoðsendingatitlinum á EM en hann var efstur fyrir lokaleikina. Hann gaf fimm stoðsendingar í lokaleiknum en það var ekki nóg til að vera efstur í stoðsendingum að meðaltali í leik.

Daníel gaf 7,0 stoðsendingar i leik og var aðeins 0,2 stoðsendingum í leik á eftir Ísraelsmanninum Noam Yaacov. Daníel hefði þurft að gefa tvær stoðsendingar í viðbót til að enda efstur á þessum lista.

Yaacov spilaði þó aðeins fimm leiki á mótinu og því gaf enginn fleiri stoðsendingar í heildina en okkar maður.

Daníel gaf alls 49 stoðsendingar í leikjunum sjö eða fjórum fleiri en Tyrkinn Emre Melih Tunca sem kom næstur.

Daníel var líka í þriðja sæti í stolnum boltum með 2,1 stolinn bolta að meðaltali í leik.

Daníel passaði líka vel upp á boltann því hann var bara með 15 tapaða bolta í leikjum sjö og gaf því 3,3 stoðsendingar á hvern tapaðan bolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×