Lífið

Kæru­leysis­konan slær í gegn á sam­fé­lags­miðlum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Kæruleysiskonan að verki á Ítalíu.
Kæruleysiskonan að verki á Ítalíu. Instagram/Þórdís Björk

„Mikið rosalega verður maður kærulaus í þessum hita,“ segir Aðalheiður móðir Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur leikkonu gjarnan í myndbandi sem nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum hinnar síðarnefndu.

Miðað við þær gríðarmiklu undirtektir sem myndbandasería Þórdísar af móður sinni að tala um hve kærulaus maður verður í miklum hita virðast margir tengja við þá tilfinningu. 

Þegar eru 119 þúsund áhorf á myndband Þórdísar á Instagram. Á TikTok síðu hennar hafa hátt í fimm þúsund manns skellt læk-i á sama myndband. 

Fjölskyldan Þórdísar var á dögunum í sumarfríi á Ítalíu en þar var kæruleysiskonan dugleg að fara með möntruna, alla jafna með bjór, Aperol- eða Limoncello spritz í hönd. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×