Lífið

Sól og sæla á Götubitahátíðinni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Um 80 þúsund manns mættu á hátíðina sem fór fram í Hljómskálagarðinum í Reykjavík liðna helgi.
Um 80 þúsund manns mættu á hátíðina sem fór fram í Hljómskálagarðinum í Reykjavík liðna helgi.

Mikil stemning myndaðist í Hljómskálagarðinum í Reykjavík liðna helgi þegar um 80 þúsund manns gerðu sér glaðan dag á hinni árlegu Götubitahátíð. Fastur liður hátíðarinnar er keppnin um besta Götubita Íslands. 

Hátíðin var haldin í fimmta sinn í ár og mættu um þrjátíu söluaðilar með matarvagna og sölubása, til að kynna gestum fyrir nýrri og spennandi matarupplifun og keppast um sætið: „Besti Götubiti Íslands 2024.“

Sigurvegari Götubitahátíðarinnar í ár er Sigurður Gunnlaugsson, betur þekktur sem Siggi Chef, sem sigraði með götubitann: nauta-brisket. 

Sigurður hefur tryggt sér sæti fyrir Íslands hönd í stærstu götubitakeppni í heimi, European Street Food Awards, sem fer fram í Þýskalandi í haust. Þar mun hann mæta átján öðrum þjóðum og keppast um titilinn um Besta götubitann í Evrópu.

Dóm­nefnd­ina skipuðu þau, Ólaf­ur Örn Ólafs­son veitingamaður, Fanney Dóra Sigurjónsdóttir matreiðlumaður, Margét Erla Maack fjöllistakona og Adam Karl Helga­son matargagnrýnandi.

Nánar um hátíðina á Reykjavikstreetfood.is

Líkt og meðfylgjandi myndir gefa til kynna var gleðin allsráðandi þar sem gestir hátíðarinnar nutu veitinga og sólarinnar liðna helgi:

Mijita lenti í þriðja sæti um Götubita ársins.Mijitia er fyrsta Kólumbíska matvælaframleiðslan á Íslandi sem framleiðir og selur handgerðan mat eftir fjölskylduhefðum frumbyggja í Kólumbíu.

Hér að neðan má sjá lista yfir sigurvegara hátíðarinnar:

Besti Götubitinn 2024

1. Siggi Chef

2. The Food Truck

3. Mijita

Götubiti Fólksins 2024

1. Silli Kokkur

2. Garibe Churros

3. Churros Wagon

Besti smábitinn 2024

1. Komo

2. Silli Kokkur

3. La Barceloneta

Besti sætibitinn 2024

1. Arctic Pies

2. Churros Wagon

3. Komo / Pizza Truck

Besti grænmetisbitinn 2024

1. Komo

2. Arctic Pies

3. Indian Food Box






Fleiri fréttir

Sjá meira


×