Lífið

Bjóða upp á per­sónu­leg hlaupanúmer í Reykja­víkur­mara­þoninu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skilaboðin geta verið af ólíkum toga í ár. Hjartnæ, fyndin og allt þar á milli.
Skilaboðin geta verið af ólíkum toga í ár. Hjartnæ, fyndin og allt þar á milli.

Hlauparar og aðstandendur geta í fyrsta sinn búið til persónuleg hlaupanúmer fyrir komandi Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer þann 24. ágúst næstkomandi.

Hlaupið fagnar 40 ára afmæli í ár en það hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem fjölmennasta hlaup á Íslandi. Frá fyrsta hlaupinu hefur ýmislegt breyst, bæði í samfélaginu og hlaupinu sjálfu. Þúsundir hlaupara spretta úr spori ár hvert, margir hverjir fyrir hin ýmsu góðgerðafélög. Reykjavíkurmaraþonið hefur því að geyma ótal sögur og ástæður fyrir því að fólk reimi á sig hlaupaskóna.

Yfirskrift hlaupsins í ár er „Fyrsta hlaupið“ og er óður til þeirra fjölmörgu fyrstu skrefa sem stigin hafa verið í hlaupinu og þeirra þáttaskila sem þau hafa markað. Í tilefni þess hefur vefsíðan fyrstahlaupid.is verið opnuð en þar geta hlauparar og aðstandendur hlaðið upp mynd og búið til sitt persónulega hlaupanúmer sem þeir geta borið í hlaupinu og um leið sagt sína sögu eða lagt málstað annarra lið. 

Allir hlauparar munu þó áfram bera hefðbundin keppnisnúmer en þau fá þannig bæði persónulegt númer og hefðbundið keppnisnúmer þegar hlaupagögnin eru sótt fyrir keppni.

Á nýju vefsíðunni geta hlauparar einnig deilt sínum myndum áfram á samfélagsmiðlum og þannig vakið enn meiri athygli á sinni áheitasöfnun. Hlaupið fer fram á Menningarnótt laugardaginn 24. ágúst. Hægt er að hlaupa maraþon, hálft maraþon, tíu kílómetra eða þrjár kílómetra. 

Skráning í hlaupið fer fram á www.rmi.is. Áheitasöfnunin fer fram á hlaupastyrkur.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×