Innlent

Gekk fram á sofandi ferða­mann á heilsu­gæslunni

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Um er að ræða líklega þurrasta og skjólsælasta tjaldstæði í bænum.
Um er að ræða líklega þurrasta og skjólsælasta tjaldstæði í bænum. Vísir/Samsett

Við Helgu Þorbergsdóttur hjúkrunarfræðingi á heilsugæslunni í Vík í Mýrdal blasti óvænt sjón á morgungöngu sinni í dag. Við inngang heilsugæslustöðvarinnar lá eins manns tjald og í því sofandi ferðamaður.

Helga segir staðsetningu tjaldsins ekki koma sér neitt sérstaklega á óvart þar sem í skotinu er bæði þurrt og skjólsælt. Hún birti færslu á Facebook-síðu sinni af nýstárlega tjaldstæðinu og lét ljóðlínurnar frægu eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi um verkamanninn þreytta fylgja með:

„Ó, hafið hljótt við litla gluggann hans

og lofið dagsins þreytta barni að sofa.“

„Ég var að fara í mína daglegu gönguferð á fjallið klukkan sex í morgun og þá rak ég augað í þetta litla tjald sem kúrði hér í skotinu á Heilsugæslustöðinni. Ég svona rétt kíkti inn til að gá hvort það væri nokkuð að þarna og mér sýndist þarna vera einhver sem svaf vært þannig ég lét hann bara vera,“ segir hún.

Hún segist gera ráð fyrir því að ferðamaður hafi gert sér inngang heilsugæslunnar að næturstað þar sem öllu hafði verið pakkað saman og engin merki um manninn þegar hún kom aftur niður af fjallinu.

„Þetta var okkur alveg að meinalausu. Þó er þetta auðvitað dálítið sérstakt,“ segir Helga.

Helga segir jafnframt að hún hafi áður lent í því að ganga fram á tjald í bakgarði sínum sem liggur við hlið heilsugæslunnar. Þetta hljóti því að vera ansi eftirsóknarverður næturstaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×