Húsið á sér sannarlega fáar hliðstæður hérlendis.Fasteignavefur
Ester Ólafsdóttir, sem rak verslunina Pelsinn í miðbænum í rúmlega 40 ár ásamt eiginmanni sínum Karli J. Steingrímssyni heitnum, hefur sett sannkallað glæsihýsi í Laugardalnum á sölu. Húsið er skráð 316 fermetrar og ásett verð er 470 milljónir.
Húsið sem um ræðir er að Laugarásvegi 35 og er byggt árið 1958. Sagt er að húsið sé umtalsvert stærra en opinberar tölur segja til um, það sé nær 500 fermetrum.
„Mjög veglegt og einstaklega vel staðsett einbýlishús á þremur hæðum. Hús sem á sér fáar hliðstæður hérlendis,“ segir í auglýsingunni.
Hellulagður garður er bakvið húsið sem er sagður mjög skjólríkur. Á efstu hæð hússins eru stórar svalir með miklu útsýni yfir Reykjavík, Bláfjöll, Kollafjörð og Snæfellsnes.
Loftmynd af glæsihýsinu, sem er fyrir miðju. Stórt og mikið útisvæði er á hverri hæð.FasteignavefurHúsið er umvafið trjágróðri og Laugaráskirkja er í næsta nágrenni.FasteignavefurPallurinn er stór og rúmgóður. Ætli þetta sé ekki hliðin sem snýr að garðinum.FasteignavefurÁbúendur virðast ekki gleyma andans rækt, en hér má finna heilagan búdda í innhverfri íhugun, og málverk af séra Guðbrandi Þorlákssyni biskup. Guðbrandur Þorláksson (1541 - 1627) þótti vera einn mesti lærdómsmaður á Íslandi, en hann stóð m.a. að umfangsmikilli prentun á guðsorðabókum þar sem Guðbrandsbiblíu bar hæst. Heilagan Búdda þarf vart að kynna fyrir Íslendingum 21. aldar.FasteignavefurÞetta er ekkert smá.FasteignavefurFylgja blómin með í kaupbæti?FasteignavefurSvefnherbergi/stofa fusion-herbergi.FasteignavefurSólríkar suðursvalir?FasteignavefurEldhúsið lítur vel út.FasteignavefurStofa með eldstæðiFasteignavefur