Frá þessu er greint í grein sem birtist í vísindatímaritinu Science of the Total Environment.
Efnið fannst í lifrum og vöðvum hákarlana og grunar vísindamennina að það hafi borist í skepnurnar með skólpvatni. Þá er einnig mögulegt að dýrin hafi komist í pakka af kókaíni í sjónum.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem kókaín greinist í villtum hákörlum og þykir uppgötvunin til marks um að ólögleg viðskipti með fíkniefni séu einnig að hafa áhrif á dýra- og lífríkið almennt.
Hákarlarnir veiddir til matar og kókaínið gæti þannig borist í menn.
Kókaín hefur víða fundist í sjó og vatni, meðal annars umhverfis São Paulo, þar sem styrkur þess er sagður jafnast á við styrk koffíns í kaffi og te. Þá hefur það fundist í drykkjarvatni í ríkinu.
Efnir hefur einnig fundist í ferskvatnsrækjum á Bretlandseyjum, svo eitthvað sé nefnt.
Washington Post fjallaði um málið.