Umsvifamikill verktaki byggir upp stöðu í Icelandair
![Hlutabréfaverð Icelandair stendur núna í 0,85 krónum á hlut og hefur aldrei verið lægra eftir að hafa lækkað um 36 prósent frá áramótum.](https://www.visir.is/i/CBDAEAFB8F386F94DF1D62C1A30E1727A7EF6A07382EAEEC74BE81EFB060E4A0_713x0.jpg)
Eigandi eins umsvifamesta verktakafyrirtækis landsins, sem hagnaðist um marga milljarða króna á liðnu ári, er kominn í hóp stærri hluthafa Icelandair eftir að hafa byggt upp nærri eins prósenta eignarhlut í flugfélaginu. Hlutabréfaverð Icelandair, sem hefur fallið um meira en sextíu prósent á einu ári, er núna í sögulegri lægð en rekstrarafkoman hefur versnað skarpt samhliða minnkandi eftirspurn í flugferðum til Íslands og lækkandi fargjöldum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/CE5994416A0DFAB587877AC7E0683DCD595A9C4AF311BEF196169370E84A9DAA_308x200.jpg)
Arcus hagnaðist um fimm milljarða og eigið fé eykst í 20 milljarða
Fasteignaþróunarfélagið Arcus, sem er í eigu Þorvaldar Gissurarsonar, hagnaðist um 4,7 milljarða króna á árinu 2023. Hagnaðurinn jókst um milljarð króna milli ára. Arcus er systurfélag ÞG Verks.
![](https://www.visir.is/i/A25D37A34E95C8BA2CB561D158C0EBD846B08D1BF00BA6D3AFA7752496C1D83E_308x200.jpg)
Arion: Ferðaþjónusta mun sækja í sig veðrið á næsta ári
Bakslagið sem er að verða í ferðaþjónustu er aðeins tímabundið, að mati hagfræðinga Arion, fremur en að það sé í vændum „kollsteypa“ líkt og sumir hafa látið í veðri vaka. Aðalhagfræðingur bankans bendir á að vegna of hás raungengis sé útlit sé fyrir gengisveikingu krónunnar horft til næstu þriggja ára sem gæti stutt við atvinnugreinina og ýtt undir lengri dvalartíma ferðamanna.