Innlent

Halla heim­sótti Guðna

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Fráfarandi og verðandi forsetafjölskyldur hittust á Bessastöðum. 
Fráfarandi og verðandi forsetafjölskyldur hittust á Bessastöðum.  Facebook/Halla Tómasdóttir

Rúm vika er til stefnu þar til Halla Tómasdóttir verður formlega sett inn í embætti forseta Íslands. Fjölskyldur Höllu og Guðna Th. Jóhannessonar hittust á Bessastöðum í dag. 

Halla Tómasdóttir birti mynd á Facebook af fjölskyldunum á Facebook og þakkar fyrir sig. 

Embættistaka hennar fer fram á fimmtudaginn eftir rúma viku. Ríkisútvarpið greindi frá því á dögunum að forseti Alþingis muni lýsa kjöri Höllu sem forseta Íslands við embættistökuna, en ekki forseti Hæstaréttar eins og hefur tíðkast. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×