Innlent

Færa börnin eftir að skemmdir í leik­skólanum komu í ljós

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, sendi bréf á foreldra barna Brákarborgar vegna tilfærslu á starfsemi skólans og framkvæmda í húsnæðinu næstu mánuði.
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, sendi bréf á foreldra barna Brákarborgar vegna tilfærslu á starfsemi skólans og framkvæmda í húsnæðinu næstu mánuði.

Reiknað álag frá ásteypulagi og torfi á þaki leikskólans Brákarborgar var meira en tilgreint var á teikningum. Sprungur voru byrjaðar að myndast í veggjum og dyrakarmar teknir að skekkjast áður en mistökin uppgötvuðust. Næstu mánuði verða framkvæmdir í húsnæðinu og starfsemi leikskólans flutt í húsnæði í Ármúla.

Þetta kemur fram í bréfi sem Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, sendi á foreldra barna við Brákarborg í dag, 24. júlí 2024 og Vísir hefur undir höndunum.

Brákarborg opnaði við Kleppsveg, þar sem áður var húsnæði Adams og Evu, síðsumars 2022 og hlaut þá hönnunarverðlaunin Grænu skófluna. Ýmsum foreldrum gramdist verðlaunaveitingin vegna þess að skólinn var þá ekki enn tilbúinn.

Börnin flutt í Ármúla og upphafi skólaárs seinkar

Ólöf Örvarsdóttir skrifar bréfið til að upplýsa foreldra um tímabundnar breytingar á starfsemi leikskólans þegar sumarlokun lýkur og til að fara yfir hvað valdi þessum tilfæringum.

Hún segir að tekið verði á móti öllum börnunum eftir sumarleyfi í „húsnæði sem áður hýsti grunnskóla í Ármúla 28-30“. Þar er átt við þegar um 400 Hagskælingar þurftu að vera við nám í húsnæðinu í um tvö ár vegna myglu í Hagaskóla.

Nú sé unnið að því að standsetja húsið fyrir leikskólastarf og því hefjist starf skólans tveimur dögum seinna en áætlað var, eða mánudaginn 12. ágúst. 

Sprungur í veggjum og skakkir dyrakarmar vegna misreiknings

Ólöf fer síðan yfir hvað veldur þessum tilfærslum í bréfinu. Umhverfis- og skipulagssvið hafi nýlega ákveðið að fara í ítarlega skoðun á burðarvirki Brákarborgar eftir að fólk tók eftir að hárfínar sprungur höfðu myndast á nokkrum veggjum og hurðir skekkst í dyrakörmum.

„Mat sérfræðinga hjá verkfræðistofunni Verkís sem fengin var til að taka út burðarvirkið, var að reiknað álag frá ásteypulagi og torfi á þakinu væri meira en tilgreint var á teikningum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í minnisblaði sem okkur var kynnt þann 9. júlí síðastliðinn. Samkvæmt minnisblaðinu er það mat Verkís að þakið eins og það stendur í dag uppfylli ekki gildandi hönnunarstaðla,“ skrifar Ólöf í bréfinu.

Þegar niðurstaðan lá fyrir leitaði Reykjavíkurborg til verkfræðistofunnar VSÓ til að sannreyna niðurstöðu Verkís og skoða burðarvirkið enn frekar með tilliti til ýtrustu öryggiskrafna. VSÓ staðfesti niðurstöðu Verkís og kynnti niðurstöðu sína fyrir starfsfólki borgarinnar síðastliðinn fimmtudag, 18. júlí.

Því sé ljóst að mistök voru gerð í hönnun og/eða framkvæmd við Brákarborg.

Skoðað hvar ábyrgðin liggi

Þá kemur fram í bréfinu að Reykjavíkurborg hafi þegar sent öllum verktökum og ráðgjöfum sem komu að verkinu formlegt bréf þar sem tilkynnt er um mögulega hönnunar- og eða framkvæmdagalla og að skoðað verði hvar ábyrgðin liggi.

Fréttirnar séu gríðarlega mikil vonbrigði og áfall að komast að því að öllum stöðlum hafi ekki verið fylgt þegar kom að burðarvirkinu.

„Það liggur fyrir til hvaða aðgerða þarf að grípa. Strax í gær var hafist handa við að fjarlægja torfið á þakinu og í framhaldi verður sett annað þakefni. Þá er unnið að því að hanna styrkingar sem settar verða upp innanhúss og einnig breytingar á þaki tengibyggingar. Við leggjum áherslu á að þessar framkvæmdir gangi fljótt og vel fyrir sig,“ skrifar Ólöf.

Með þeim breytingum sem farið verði í á næstu dögum og mánuðum verði tryggt að öllum gildandi öryggiskröfum verði mætt.

Nákvæm tímaáætlun liggi ekki enn fyrir

Loks segir Ólöf að rétt sé að taka fram að þau ummerki sem leiddu til þess að farið var í skoðun á burðarvirkinu séu talin ótengd þeim mistökum sem hér var áður lýst. Hún á væntanlega þar við um sprungurnar og skökku dyrakarmana. 

Einnig segir hún að flot sem var undir gólfdúk sé að losna og skoðað verði hvernig ábyrgð á því liggi og unnið að því samhliða öðrum framkvæmdum.

Unnið sé í þéttu samstarfi við Sólrúnu Óskarsdóttur leikskólastýru, starfsfólk Brákarborgar og annað starfsfólk hjá skóla- og frístundasviði. Ekki sé enn hægt að gefa upp nákvæma tímaætlun fyrir framkvæmdir en foreldrar verði upplýstir eftir því sem verkinu vindur fram.


Tengdar fréttir

„Gerum eitthvað af viti áður en allir leikskólakennarar ganga út“

Leikskólakennari í Brákarborg gagnrýnir vinnubrögð borgarinnar við flutning í nýtt húsnæði. Leikskólakennarar hafi flutt í húsnæðið, reynt að taka það helsta upp úr kössum og hafið aðlögun nýrra nemenda á sama tíma. Framkvæmdir séu enn í fullum gangi og efast hún um að skrifstofufólk borgarinnar myndi láta bjóða sér slíkar vinnuaðstæður.

Verður hluti af leik­skólanum Brákar­borg

Stefnt er að því að stjórnun og rekstur nýs leikskóla við Kleppsveg 150-152 muni heyri undir leikskólann Brákarborg sem er til húsa í Brákarsundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×