Lífið

Ís­lenskar stjörnur flykkjast í sólina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnur landsins virðast vera komnar með nóg af gráum rigningardögum og flykkjast af stað í sólina erlendis.
Stjörnur landsins virðast vera komnar með nóg af gráum rigningardögum og flykkjast af stað í sólina erlendis.

Svo virðist sem Íslendingar hafi gefist upp á íslenskra sumrinu og flykkjast nú hver af öðrum út fyrir landssteinana í leit að sól og hækkandi hitastigi. Stjörnur landsins eru þar engin undantekning. Myndir af sólríkum ströndum, pálmatrjám og berum kroppum einkenna samfélagsmiðla þessa dagana. 

Paraferð til Prag

Undanfarna daga hefur tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin notið veðurblíðunnar í Prag. Þar spókaði hann sig um götur bæjarins með sinni heittelskuðu, Ernu Maríu Björnsdóttur.

Menningarleg í Portúgal

Diljá Mist Einarsdóttir, lögfræðingur og alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi norður, og fjölskylda fóru til Portúgal. Þar hafa þau skoðað sig um á sögulegum slóðum í Almada, en þar má meðal annars sjá 110 metra hán stall með styttu af Jesús frá árinu 1959.

Rómans í Frakklandi

Kærustuparið Hildur Sif Hauksdóttir og Páll Orri Pálsson baða sig í sólinni við frönsku rívíeruna.

Hildur Sif og Páll hafa deilt fjölda mynda með fylgjendum sínum bæði í hringrásinni (e.story) á Instagram og birt myndir þar sem sjá má fallegt umhverfi, sólríkar stendur og bláan himin leika við þau við frönsku rívíeruna.

Skrautlegt ferðalag með börnin

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal og fjölskylda eru í fríi á Ítalíu, nánar tiltekið Rivadel Garda, í norðurhluta landsins.

„Að ferðast með börn er svolítið í ökkla eða eyra. Erum í eyra hérna núna,“ segir Auddi um ferðalagið sem virðist líflegt með tvo litla gaura.

Skvísuferð til Króatíu

Áhrifavaldarnir Sunneva Einars. Brynhildur Gunnlaugs og Tanja Ýr Ástþórdóttir njóta veðurblíðunnar í Króatíu í sannkallaðri skvísuferð. Af myndum að dæma gista þær í glæsilegri lúxusvillu. 

Sænsk sæla

Elísabet Gunnars tískudrottning fór á gamlar heimaslóðir í Svíþjóð þar sem sól og blár himinn tók á móti henni og fjölskyldunni.

Flúðu til Feneyja

Matarbloggarinn Linda Benediktsdóttir tók skyndiákvörðun, líkt og fjölmargir Íslendingar hafa gert síðastliðna daga, og fór með fjölskyldunni í frí til Feneyja á Ítalíu.

Mæðgnaferð til London

Skemmtikrafturinn Eva Ruza Miljevic skellti sér í mæðgnaferð til London í vikunni.

Vinaferð til Grikklands

Björn Boði Björnsdóttir Worldclass-erfingi og flugþjónn nýtur lífsins á grísku eyjunni Míkonos.

Næs í Nice

Tara Sif Birgisdóttir, fasteignasali og dansari, og eiginmaður hennar Elfar Elí Schweitz Jakobsson fóru í rómanstískt frí til Frakklands á dögunum.


Tengdar fréttir

Hildur Sif og Páll Orri ástfangin í Frakklandi

Hildur Sif Hauksdóttir, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, og kærastinn hennar Páll Orri Pálsson eru stödd í Cannes í Frakklandi þar sem þau njóta lífsins og sólarinnar saman. 

Nýjasta tíska ferðalanga? Að fljúga berbakt um háloftin

Ferðalangar á leið í átta tíma flug með Icelandair til Seattle gátu ekki horft á sjónvarp um borð og gramdist það sumum. Þeim gafst þó gullið tækifæri til að taka þátt í nýjasta TikTok-trendinu, að fara berbakt í flug. Um er að ræða fullkomna ögunar- og núvitundaræfingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×