Fótbolti

„Verða örugg­lega fleiri lög­reglu­menn en á­horf­endur“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar Gunnlaugsson segir sína menn mæta reiða til leiks eftir þrjá erfiða leiki.
Arnar Gunnlaugsson segir sína menn mæta reiða til leiks eftir þrjá erfiða leiki. Vísir/Arnar

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, segir sína menn mæta reiða til leiks í Evrópuleik kvöldsins við Egnatia frá Albaníu. Hann hefur litlar áhyggjur af hegðun fólks í stúkunni.

Víkingur tapaði einvígi sínu við Shamrock Rovers frá Írlandi í forkeppni Meistaradeildarinnar í síðustu viku og færðist því yfir í Sambandsdeildina. Þá töpuðu Víkingar óvænt fyrir KA norðan heiða um helgina. Arnar segir sína menn hafa æft vel og farið vel yfir málin.

„Þetta eru búnir að vera þungir leikir, síðustu þrír, og erfið úrslit. Við mætum reiðir til leiks. Þetta er búin að vera frábær æfingavika og við höfum talað opinskátt um hlutina. Það eru svona fimm prósent sem vantar hingað og þangað á öllum vígstöðum. Ég held við sjáum góða frammistöðu,“ segir Arnar.

Evrópuleikir kvöldsins verða allir sýndur á rásum Stöðvar 2 Sport.Vísir/Sara

En er ekki leiðinlegt að vera eina íslenska liðið sem tapaði Evrópueinvígi sínu?

„Hin liðin gerðu ótrúlega vel og við klikkuðum bara á okkar verkefni. Það gerist bara í fótbolta. Frammistaðan var mjög góð í báðum leikjunum og reyndar á móti KA líka. Stundum taparu bara fótboltaleikjum. Þú reynir að finna ástæður fyrir því. Ég tel okkur hafa fundið þær ástæður,“ segir Arnar.

Klippa: Mæta reiðir til leiks

Hvernig lið er þetta sem Víkingar mæta í kvöld?

„Þeir kunna flesta hluti mjög vel en eiga til að vera óagaðir í sínum leik. Taktískt að slökkva á sér og fara að hugsa um hvað er í kvöldmatinn í staðinn fyrir að klára leikinn í 90 mínútur. Sem Valur fékk ef til vill að kynnast. Á þeirra degi geta þeir verið virkilega öflugir og eru með tekníska leikmenn innanborðs,“

Arnar kveðst þá ekki hafa áhyggjur af látum í stúkunni. Upp úr sauð þegar albanskur mótherji kom síðast hingað til lands og mætti Val. UEFA hefur tekið fast á málum og lögregluviðvera verður í Víkinni, sem og á Kópavogsvelli, í kvöld.

„Í gamla daga hefði maður haft áhyggjur. En í dag sendir UEFA eitt bréf og hótar því að lið spili ekki næstu áratugina ef menn láta svona. Mér skilst að viðureignin úti hjá Val hafi heppnast mjög vel. Svo er þetta high risk leikur í augum UEFA svo það verða hér örugglega fleiri lögreglumenn en áhorfendur á morgun. Ég hef engar áhyggjur,“ segir Arnar.

Viðtalið við Arnar má sjá í spilaranum að ofan.


Tengdar fréttir

„Erum búnir að skoða þá vel og það er fullt af fínum spilurum þarna“

„Gríðarlega mikil spenna. Klárlega, mér finnst við búnir að spila bara ágætlega undanfarið þó úrslitin hafi ekki verið að ganga með okkur. Þurfum bara að fá tuðruna í netið og þá held ég að við séum í góðum málum,“ sagði Aron Elís Þrándarsson, leikmaður Víkings, fyrir leik kvöldsins gegn Egnatia í undankeppni Sambandsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×