Innlent

Af­tengja sig Pírataspjallinu

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hópurinn hefur verið vinsæll vettvangur þjóðfélagsumræðu í áraraðir.
Hópurinn hefur verið vinsæll vettvangur þjóðfélagsumræðu í áraraðir. Getty

Hópnum „Pírataspjallið 2“ hefur verið læst og nafninu breytt í „Vettvangurinn.“ Píratar hafa ákveðið að aftengja hreyfinguna við hópinn sem var með tæplega tólf þúsund meðlimi.

 Hann hefur verið til í ellefu ár og var vinsæll vettvangur þjóðfélagsumræðu. Nú er ekki lengur hægt að birta færslur í hópnum og efst hefur verið fest tilkynning frá Kristínu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Pírata þar sem fram kemur að unnið sé að því að leggja hópinn niður.

„Spjallið hefur þróast töluvert og á félagsfundi Pírata í fyrra voru felldar út allar stefnur sem varða Pírataspjallið og hefur þessi vettvangur síðan þá ekki verið tengdur Pírötum formlega,“ segir í tilkynningunni.

Hún segir það hafa verið lýðræðislega niðurstöðu meðal skráðra félaga í Pírötum að aftengja hreyfinguna við þennan vettvang.

„Við þökkum ykkur samfylgdina. Vilji fólk ná tali af Pírötum verða til þess næg tækifæri á næstunni,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×