Innlent

Allt í háa­loft þegar faðirinn sneri til baka úr veikinda­leyfi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fyrirtækið sem um ræðir er smíðaverkstæði.
Fyrirtækið sem um ræðir er smíðaverkstæði. Getty

Átök í fjölskyldufyrirtæki sem lauk með því að synir sögðu föður sínum upp störfum leiddu til dómsmáls. Tuttugu árum eftir að feðgarnir stofnuðu fyrirtækið fór allt í háaloft.

Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm sinn í vikunni. Faðirinn stefndi fyrirtækinu, smíðaverkstæði sem hann stofnaði með sonum sínum árið 2000, og krafðist á fjórða tug milljóna króna.

Faðirinn átti í upphafi 40 prósent í fyrirtækinu en synir hans hvor um sig 30 prósent. Þegar eiginkona föðurins féll frá árið 2019 erfðu börn þeirra hluta móður sinnar sem hafði verið hjúskapareign foreldranna. Þá breyttust hlutföllin þannig að annar sonurinn varð stærsti hluthafinn með 43 prósent en hlutur föðurins varð 27 prósent.

Sneri aftur með látum

Faðirinn, sem var skráður framkvæmdastjóri, varð fyrir slysi í ársbyrjun 2021 og var í kjölfarið óvinnufær. Hann fékk fullar launagreiðslur út júlí það ár þegar veikindaréttur hans var uppurinn. Hann sneri aftur til vinnu í október og greiddi sér laun næstu tvo mánuði.

Mikið ósætti varð á vinnustaðnum í kjölfar endurkomu föðurins. Hann sagði gjaldkera og bókara fyrirtækisins fyrirvaralaust upp en um var að ræða eiginkonu sonar hans sem fór með stærstan hlut í fyrirtækinu. Sagði faðirinn að konan hefði orðið uppvís að grófum og ítrekuðum brotum í starfi.

Þau fælu í sér broti á hlýðnisskyldu, greiðslu ósamþykktra reikninga, fjárdrátt og undanskoti verðmæta í eigu fyrirtækisins sem hefðu verið nýtt til að byggja húss í eigu konunnar. Var konan krafin um að yfirgefa vinnustaðinn án tafar. Þá sakaði faðirinn son sinn og eiginkonu hans um úttektir upp á tugi milljóna króna sem hefðu farið í íbúðarhús hjónanna.

Lokuðu á aðgang föður

Synirnir brugðust við með því að reyna að boða til hluthafafundar til að tryggja yfirráð sín í fyrirtækinu. Það tókst loks milli jóla og nýárs þar sem skráningu félagsins var breytt á þann veg að annar sonurinn var stjórnarmaður og hinn varamaður. 

Var í framhaldinu lokað á símanúmer föðurins á vegum fyrirtækisins sem og aðgangi að tölvupósti og heimabanka sem hann hafði haft sem framkvæmdastjóri. Þá þurfti hann að skila bíl sem hann hafði umráð yfir. Þá var hann krafinn um að tæma íbúð sem hann hafði búið í.

Faðirinn túlkaði framgöngu stjórnar fela í sér uppsögn sem framkvæmdastjóra og krafðist launa í sex mánuði. Þeirri beiðni var hafnað og vísað til þess að enginn ráðningarsamningur hefði verið fyrir hendi.

Persónuleg útlát dregin frá arðgreiðslum

Faðirinn hefði greitt sér laun í þrjá mánuði eftir endurkomuna án þess að skila tímaskýrslum. Hann hefði auk þess notað kreditkort fyrirtækisins til eigin nota, nýtt í læknisheimsóknir, hádegismat, matarinnkaup og tölvukaup. Allt væru óheimilar úttektir.

Þá hefði faðirinn látið fyrirtækið borga bókhaldsstofu og lögmanni fyrir persónulega vinnu. Auk þess hefði hann gefið út fjölda reikninga með röngum fjárhæðum og í mörgum tilvikum án þess að efniskostnaður væri innheimtur samhliða. Sundurliðun á vinnu og efniskostnaði hefði vantað og viðskiptavinir orðið ósáttir við útgefna reikninga. Kröfur hefðu safnast upp og stefnandi ekki greitt reikninga á réttum tíma.

Faðirinn ákvað því að stefna fyrirtækinu og krafðist arðgreiðslu upp á 27 milljónir og sex milljónir króna í vangoldin laun. Héraðsdómur Reykjaness samþykkti kröfu hans um arðgreiðslu en ekki launin því synirnir hefðu verið í rétti til að reka föður sinn. Frá 27 milljóna króna arðgreiðslunni dragast þó 3,7 milljónir króna sem hann hafði þegar fengið greiddar og uppsöfnuð útgjöld vegna persónulegs kostnaðar sem faðirinn hafði látið fyrirtækið greiða. Honum voru dæmdar 7,4 milljónir króna.

Dómur Héraðsdóms Reykjaness.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×