Körfubolti

Oddur Rúnar aftur í Grinda­vík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Oddur Rúnar Kristjánsson í leik með Njarðvík 2022-23 tímabilið.
Oddur Rúnar Kristjánsson í leik með Njarðvík 2022-23 tímabilið. Vísir/Vilhelm

Oddur Rúnar Kristjánsson snýr aftur í Bónus-deildina í körfubolta á komandi tímabili en hann hefur samið við Grindavík.

Oddur ætti að vera Grindvíkingum að góðu kunnur en hann lék í Grindavíkurbúningnum tímabilið 2014-15 eða fyrir áratug síðan.

Oddur er 28 ára bakvörður sem hefur missti mikið úr á síðustu árum.

Oddur lék síðast í úrvalsdeild með Njarðvík veturinn 2022-23 en það tímabil var hann fjórða besta þriggja stigaskytta deildarinnar, með rúmlega 42% nýtingu fyrir utan línuna. Oddur skoraði 7,8 stig í leik með Njarðvíkingum.

Oddur var hins vegar með 11,4 stig og 2,2 stoðsendingar að meðaltali í leik þegar hann spilaði með Grindavík fyrir tíu árum síðan.

Hann hefur einnig leikið með KR, Stjörnunni, ÍR og Val í efstu deild. Oddur á alls 95 leiki í úrvalsdeild og spilar því væntanlega sinn hundraðasta leik í efstu deild á næstu leiktíð. Hann er einnig 88 stigum frá því að skora þúsund stig í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×