Lífið

Arna Ýr uppljóstrar um kostnað brúð­kaupsins

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Arna Ýr og Vignir Þór héldu glæsilegt brúðkaup í júlí í fyrra.
Arna Ýr og Vignir Þór héldu glæsilegt brúðkaup í júlí í fyrra.

Brúðkaup Örnu Ýrar Jónsdóttur, fegurðardrottningar og hjúkrunarfræðinema, og eiginmanns hennar Vignis Þór Bollasonar kírópraktors, kostaði rúmar átta milljónir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjasta hlaðvarpsþætti Stöllur í öllu sem er í umsjón Örnu Ýrar og Chrissie Thelmu.

Arna Ýr og Vignir gengu í hjónaband 1. júlí 2023 og fór athöfnin fram í Háteigskirkju í Reykjavík. Veislan var haldin í sal Sjálands í Garðabæ þar sem ástinni var fagnað langt fram eftir kvöldi undir veislustjórn Evu Ruzu Miljevic.

Arna Ýr og Vignir settu ekki upp kostnaðaráætlun fyrir brúðkaupið en dreifðu þess í stað kostnaðinum yfir átján mánaða tímabil. 

„Heildarkostnaðurinn var í kringum átta til níu miljónir en það er ekki alveg að marka þegar það fer yfir svona langt tímabil að kaupa hluti. Vissulega var þetta mikið og við ákváðum að gera þetta frekar en margt annað,“ segir Arna Ýr og bætir við:

„Málið er að við vorum byrjuð svo snemma að greiða fyrir hina og þessa þjónustu. Auðvitað fann maður fyrir þessum kostnaði, þetta voru margar milljónir, það er heavy sko, en út af því að við byrjuðum einu og hálfu ári áður að borga staðfestningargjald fyrir salinn og ég var dugleg að kaupa eitthvað jafnt og þétt þá var þetta ekki jafn mikið högg.“ 

Ættu mögulega stærra heimili

Arna Ýr segir að fólk ætti að geta haldið glæsileg brúðkaup fyrir mun minni fjárhæðir en að þau sjái ekki eftir peningnum.

„Þetta er náttúrulega engin fjárfesting sko. Við búum í íbúð í dag, kannski ættum við öðruvísi heimili ef við hefðum ekki sett svona mikinn pening í þetta,“ segir Arna Ýr og hlær.

Þáttinn má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

Arna Ýr er margfaldur sigurvegari fegurðarsamkeppna hér á landi en hún hampaði titilinum Ungfrú Ísland árið 2015 og vann sömuleiðis keppnina Miss Universe Iceland árið 2017.

Vignir hefur getið sér góðs orðs sem kírópraktor en hann rekur stofuna Líf Kírópraktík.

Saman eiga hjónin þrjú börn.


Tengdar fréttir

Arna Ýr fæddi soninn í rósabaði í stofunni heima

„Öllum líður vel, fæðingin tók bara þrjár til fjórar klukkustundir og hann er átján merkur,“ segir fegurðardrottningin og samfélagsmiðlastjarnan Arna ýr Jónsdóttir í samtali við Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×