Veður

Á­fram vætu­samt og skýjað um helgina

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Ferðamenn í rigningu árið 2018.
Ferðamenn í rigningu árið 2018. Vísir/Vilhelm

Spáð er suðlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s í dag. skýjað að mestu og dálítil væta á víð og dreif. Bætir í rigningu á Suður- og Vesturlandi seinnipartinn. Hiti víða 10 - 15 stig.

Minna er um ský og úrkomu fyrir Norðan og Austan í dag.

Á Sunnudag gengur í suðaustan- og austan 8-15 m/s með rigningu, en hægara og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast norðaustantil.

Spáin í dag.Veðurstofan
Spáin á sunnudaginn.Veðurstofan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×