Innlent

Skipu­leggj­endur Druslu­göngunnar þurftu fljót­lega að loka fyrir inn­sendingar

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Lísa Margrét Gunnarsdóttir er ein af skipuleggjendum göngunnar sem er nú haldin í tólfta skipti.
Lísa Margrét Gunnarsdóttir er ein af skipuleggjendum göngunnar sem er nú haldin í tólfta skipti. Aðsend

Gríðarlegur fjöldi fólks sendi skipuleggjendum Druslugöngunnar upplifun sína af kynferðisofbeldi og verða setningar frá þeim lesnar á Austurvelli í dag þegar gangan verður haldin. Skipuleggjandi segir algengt að þolendur séu einmana og mikilvægt að skila skömminni og ræða um ofbeldið.

Druslugangan sem verður haldin í tólfta skipti í dag er samstöðuganga með þolendum kynferðislegs ofbeldis. Lísa Margrét Gunnarsdóttir, einn skipuleggjandi druslugöngunnar segir að dagskráin í dag verði fjölbreytt.

„Við mætum klukkan eitt við Hallgrímskirkju, þar verður varningssala og skiltagerð. Við byrjum að ganga klukkan tvö frá Hallgrímskirkju og endum á Austurvelli. Þar taka við ræðuhöld og lifandi tónlist.“

Sögur flæddu inn

Lísa segir að skipuleggjendur hafi boðið fólki að senda inn upplifanir sínar af kynferðisofbeldi.

„Við buðum fólki að skrifa frá sér skömmina, nafnlaust að sjálfsögðu, og við munum lesa setningar frá þolendum.“ Þau hafi fengið gríðarmikil viðbrögð við ákallinu.

„Við þurftum að loka fyrir innsendingar innan við sólarhring síðar. Okkur fannst mikilvægt að reyna að koma öllu fyrir sem við fengum því við vildum ekki biðja fólk um að skila einhverju frá sér og hafa svo ekki tök á að lesa það. Þannig við ætlum að lesa allt sem barst okkur.“

Mikilvægt að sem flest mæti

Lísa segir að viss rauður þráður einkenni frásagnir þolenda.

„Það er oft svo einmanalegt að vera þolandi. Okkur fannst það svolítið einkennandi fyrir svörin og mörg sem þurftu líka að tala um hvernig réttarkerfið hafði brugðist þeim.“ Lísa hvetur fólk til að mæta í dag.

„Ég vil ítreka að það mega öll koma á gönguna. Fólk sem hefur kannski upplifað eitthvað sjálft og ekki þorað að segja neitt eða bara fólk sem vill sýna málstaðnum stuðning. Mér finnst rosalega mikilvægt að við mætum sem flest.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×