Formúla 1

Ver­stappen fljótastur en ræsir ellefti

Siggeir Ævarsson skrifar
Heimsmeistararnir Max Verstappen og Lewis Hamilton fara yfir málin
Heimsmeistararnir Max Verstappen og Lewis Hamilton fara yfir málin Vísir/EPA-EFE/SHAWN THEW

Heimsmeistarinn Max Verstappen var langfljótastur í dag þegar tímatökur fóru fram fyrir Belgíukappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer á morgun. Hann ræsir þó úr ellefta sæti þar sem hann tekur út refsingu.

Verstappen var um hálfri sekúndu hraðari en Charles Leclerc, ökumaður Ferrari, sem færist upp á ráspól þar sem Verstappen tekur út refsingu fyrir tíð vélaútskipti.

Keppnin í Belgíu hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma og hefst bein útsending á Vodafone Sport klukkan 12:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×