Handbolti

Heims­meistararnir lögðu Evrópu­meistarana

Siggeir Ævarsson skrifar
Mathias Gidsel var markahæstur Dana í kvöld með ellefu mörk
Mathias Gidsel var markahæstur Dana í kvöld með ellefu mörk vísir/Getty

Boðið var upp á sannkallaðan stórmeistaraslag á Ólympíuleikunum í kvöld þegar heimsmeistarar Danmerkur mættu Evrópumeisturum Frakklands í handbolta.

Frakkar byrjuðu leikinn töluvert betur og náðu fjögurra marka forskoti, 9-5, í byrjun en Danir jöfnuðu fljótlega og leiddu með einu marki í hálfleik, 17-18.

Danir hófu seinni hálfleikinn á 4-0 áhlaupi og létu forystuna ekki ef hendi eftir það, en Frökkum tókst þó að minnka muninn í eitt mark, 25-26, þegar um stundarfjórðungur lifði af leiknum. Þá skoruðu Danir fimm mörk í röð og sigurinn nokkurn veginn í höfn, lokatölur 37-29.

Dagur Sigurðsson stýrði Króatíu í sínum fyrsta keppnisleik í dag og mætti þar sínu gamla liði, Japan. Boðið var upp á ótrúlega dramatík þar sem Króatar stálu sigrinum á lokasekúndunum. Lokatölur 30-29.

Þá unnu lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi góðan 30-27 sigur á Svíþjóð en alls fóru sex handboltaleikir fram á Ólympíuleikunum í kvöld.

Úrslit í öðrum leikjum dagsins

Spánn - Slóvenía 25-22

Ungverjaland - Egyptaland 32-35

Noregur - Argentína 36-31

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×