Sport

Snæ­fríður Sól í undan­úr­slit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Snæfríður Sól er komin í undanúrslit í 200 metra skriðsundi.
Snæfríður Sól er komin í undanúrslit í 200 metra skriðsundi. Sundsamband Íslands

Snæfríður Sól Jórunnardóttur synti af gríðarlegu öryggi í 200 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum sem fram fara í París. Hún endaði í 5. sæti í sínum undanriðli og tryggði sér inn í 16 keppenda undanúrslit. Keppni í þeim fer fram síðar í kvöld.

Snæfríður Sól var að vissu leyti með bakið upp við vegg fyrir sundið þar sem fjórar sem höfðu keppt í undanriðlinum á undan voru með betri tíma en Snæfríður Sól átti best. það kom ekki að sök þar sem Snæfríður Sól synti af fádæma öryggi.

Hún endaði í 5. sæti í sínum undanriðli sem var gríðarlega jafn. Síðasta ferðin var æsispennandi og endaði Snæfríður Sól í 5. sæti á tímanum 1.58.32 mínúta, örlítið frá sínu meti.

Snæfríður Sól var í 15. sæti og er í topp 16 á Ólympíuleikunum og keppir í undanúrslitunum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×