Innlent

Sækja slasaðan göngumann í Kerlingar­fjöll

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í Kerlingarfjöll að sækja slasaðan göngumann.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í Kerlingarfjöll að sækja slasaðan göngumann. Vísir/Vilhelm

Björgunarsveitir frá uppsveitum Árnessýslu eru nú á leið inn í Kerlingarfjöll vegna slasaðs göngumanns, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu Landsbjargar.

Ekki er vitað hversu alvarlega slasaður hann er eða hvernig slysið bar að.

Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×