Erlent

Mikið undir í for­seta­kosningum Venesúela

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Gengið var að kjörborðinu í dag. Sitjandi forseti heitir blóðbaði nái hann ekki endurkjöri.
Gengið var að kjörborðinu í dag. Sitjandi forseti heitir blóðbaði nái hann ekki endurkjöri. EPA

Forsetakosningar fóru fram í Venesúela í dag. Kjörstöðum átti að loka klukkan tíu í kvöld að íslenskum tíma en standa víða enn opnir vegna þess að enn stendur fólk í röð og bíður eftir að fá að kjósa. 

Óljóst er hvenær niðurstöður liggja fyrir en forsetinn, Nicolas Maduro, freistir þess að ná kjöri enn á ný. Í kjölfar endurkjörs Maduro til forseta Venesúela árið 2018 mótmæltu mörg ríki, þar á meðal Bandaríkin, framkvæmd forsetakosninganna og sögðu kosningarnar ekki lögmætar. 

Maduro segir kosningakerfi Venesúela hins vegar það réttmætasta á jörðinni og heitir blóðbaði nái hann ekki endurkjöri. 

Á kjörseðlinum var einnig hinn 74 ára gamli Edmundo Gonzalez sem segir að bjarga þurfi þjóðinni frá slæmu efnahagsástandi. Afslappað yfirbragð einkennir Gonzalez, sem hefur unnið sér inn stuðning fyrrum stuðningsmanna Maduro. 

Reuters segir frá því að langar raðir hafi myndast við kjörstaði á nokkrum stöðum í dag. Á einstaka stöðum hafi raðir gengið verulega hægt og örtröð myndast fyrir utan kjörstaði. 

Klukkan 18:11, eða 22:11 á íslenskum tíma krafðist Marína Corina Machado leiðtogi stjórnarandstöðunnar þess að kjörstöðum yrði lokað í færslu á samfélagsmiðlum. „Ef það er enginn í röð verður að loka kjörstöðum,“ sagði Machado. „Það er kominn tími til að sjá hvernig atkvæði ykkar eru talin, kjörseðil fyrir kjörseðil. “

Brottvísunum mótmælt í ljósi kosninganna

Kosningarnar eru sagðar spennandi og telja stuðningsmenn stjórnarandstöðu að þeir eigi raunhæfan möguleika á að fella sitjandi forseta, en hafa í leið gagnrýnt framkvæmd kosninganna. Ákvarðanir kjörstjórnar og handtökur starfsmanna stjórnarandstöðunnar séu leið til þess að grafa undan velgengni Gonzalez. 

Samtökin No borders mótmæltu áframhaldandi brottvísun fólks til Venesúela fyrir framan Hallgrímskirkju í dag. Skipuleggjendur mótmælanna segja að þrátt fyrir lífshættulegar aðstæður þar í landi séu þrjátíu til fjörutíu manns frá Venesúela vísað úr landi í hverri viku. 

„Ef Maduro ríkisstjórnin gerir það sama og hún gerði í síðustu kosningum er verið að senda fólk út í opinn dauðann,“ sögðu No borders samtökin í tilkynningu. Önnur mótmæli verða haldin á sama tíma á morgun. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×