Handbolti

Króatar misstu móðinn í seinni hálf­leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Strákarnir hans Dags Sigurðssonar gáfu verulega eftir í seinni hálfleik gegn Slóveníu.
Strákarnir hans Dags Sigurðssonar gáfu verulega eftir í seinni hálfleik gegn Slóveníu. getty/Marco Steinbrenner

Króatíska karlalandsliðið í handbolta, sem Dagur Sigurðsson stýrir, tapaði fyrir Slóveníu, 31-29, í öðrum leik sínum á Ólympíuleikunum í París í dag.

Í fyrsta leik sínum vann Króatía nauman sigur á Japan, 30-29, eftir að hafa verið sex mörkum undir í seinni hálfleik.

Króatar byrjuðu leikinn gegn Slóvenum vel og komust í 1-5. Króatíska liðið var yfir nær allan fyrri hálfleikinn en gaf eftir á síðustu mínútum hans og staðan í hálfleik var jöfn, 13-13.

Króatía komst í 17-19 í byrjun seinni hálfleiks en Slóvenía svaraði með 8-2 kafla og komst fjórum mörkum yfir, 25-21.

Slóvenar létu forystuna ekki af hendi og unnu á endanum tveggja marka sigur, 31-29, og fengu sín fyrstu stig í A-riðli.

Blaz Janc og Aleks Vlah skoruðu átta mörk hvor fyrir Slóveníu en Mario Sostaric, Zvonimir Srna og Ivan Martinovic skoruðu allir fimm mörk fyrir Króatíu.

Í næstu umferð mætir Króatía þýsku strákunum hans Alfreðs Gíslasonar á meðan Slóvenía etur kappi við Svíþjóð.


Tengdar fréttir

Strákarnir hans Alfreðs Gísla skutu Japana niður á jörðina

Japanska handboltalandsliðið átti frábæran leik á móti gamla þjálfara sínum í fyrsta leik sínum á Ólympíuleikunum í París en Japanir fóru aftur á móti mjög illa út leik sínum á móti öðrum íslenskum þjálfara i dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×