Fótbolti

„Þurfum að fara að spila fyrir merkið“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Aron Sigurðarson, leikmaður KR, átti fínan leik á kantinum. 
Aron Sigurðarson, leikmaður KR, átti fínan leik á kantinum.  Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Aron Sigurðarson, kantmaður KR-inga, fannst frammistaða liðsins verðskulda meira en eitt stig þegar liðið fékk KA í heimsókn í Bestu deild karla í fótbolta á Meistaravöllum í kvöld. 

„Þetta eru blendnar tilfinningar. Það er auðvitað frábært að ná að jafna á lokamínútunni en við vorum með mikla yfirburði í þessum leik og hefðum átt að nýta það betur. Við vorum miklu betri í fyrri hálfleik og á löngum köflum í seinni hálfleik. Við náðum hins vegar að nýta færin og því fór sem fór,“ sagði Aron um leikinn. 

„Það slökknaði á okkur í rúmar 10 mínútur og þeir gerðu vel í að skora tvö mörk á þeim kafla. Þetta er bara saga sumarsins. Við höfum náð góðum spilköflum í öllum leikjum sumarsins og oftar en ekki berið sterkari aðilinn án þess að ná að sigla sigrum heim,“ sagði hann svekktur. 

„Við erum að leka mörkum og við þurfum einfaldlega að fara að leggja meira á okkur. Það er heiður að spila fyrir okkur og við þurfum að klára hlaupin okkar í varnarleikinum. Spila bara fyrir merkið og sýna meiri dugnað þegar kemur að því að verjast,“ sagði Aron. 

„Við erum að spila vel úti á vellinum en eins og í kvöld þá fæ ég færi til þess að koma okkur í 2-0 og það hefði breytt stöðunni umtalsvert. Við þurfum að klára færin betur og vera meira sharp þegar við erum að verjast í okkar vítateig,“ sagði þessi hæfileikaríki leikmaður. 

„Við erum í fallbaráttu eins og staðan er núna en það er nóg af leikjum eftir til þess að klífa upp töfluna. Það er bara áfram gakk og fara að spila heilan leik jafn vel og við gerðum lungann úr þessum leik. Við höfum sýnt í allt sumar hvað við getum en við þurfum að gera betur í vítateigunum,“ sagði KR-ingurinn um framhaldið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×