Uppgjörið: Drita - Breiðablik 1-0 | Evrópusumarið á enda runnið Valur Páll Eiríksson skrifar 30. júlí 2024 16:55 Blikar takast á við Drita í dag. Vísir/Ernir Breiðablik er fallið úr keppni í Sambandsdeild Evrópu þetta sumarið. Liðið þurfti að þola 1-0 tap fyrir liði Drita í Kósóvó. Ljóst var fyrir leik að Blikar þyrftu sigur sökum þess að þeir töpuðu 2-1 í fyrri leiknum í Kópavogi á fimmtudaginn var. Leikurinn var tíðindalítill og gerðu vallaraðstæður mönnum erfitt fyrir. Grasið í Kósóvó þurrt og ójafnt sem hafði sín áhrif. Blikar voru máttlitlir fram á við og var lið Drita hættulegri aðilinn í markalausum fyrri hálfleik. Það var að sjá aðeins meiri kraft í Blikum í upphafi síðari hálfleiks en færin létu áfram á sér standa. Um síðari hálfleikinn miðjan braut hægri kantmaðurinn Kastriot Selmani ísinn þegar hann lék vel inn á völlinn og svoleiðis smurði boltann í vinkilinn fjær. Blikar reyndu hvað þeir gátu að finna sér leið inn í leikinn en fátt gekk fram á við. Drita vann leikinn 1-0, einvígið samanlagt 3-1 og fer því áfram. Evrópusumar Blika hins vegar á enda runnið. Sambandsdeild Evrópu Breiðablik
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“